Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Allir sem smakka bíta á agnið

$
0
0

Þegar makríllinn kom til Íslands ákvað sjómaðurinn og matmaðurinn Ómar Fransson að gera eitthvað gott úr þessum fallega fiski. Eftir að hafa prófað ótal útgáfur af heitreyktum makríl voru tilraunadýrin, hinir trillukarlarnir á Höfn, loks sammála um hvað væri besta útgáfan. Það voru fleiri sem voru sammála trillukörlunum því Sólskersmakríllinn vann Norðurlandakeppni smáframleiðenda árið 2013 og síðan þá hefur Ómar ekki haft undan við að reykja og gera paté milli þess sem hann stundar sjóinn. 

„Margir höfðu myndað sér skoðanir á þessu fyrirfram og sögðu að makríllinn væri bara óþverri, bara beita og ekki mannamatur.“

„Þegar makríllinn kom hingað til lands hugsaði ég með mér að það hlyti að vera hægt að gera eitthvað gott úr þessum fallega fiski,“ segir Ómar Fransson sjómaður og stofnandi Sólskers, sjávarútvegsfyrirtækis sem gerir út bát á Hornafirði ásamt matvælaframleiðslu. Sólsker sérhæfir sig í heitreyktum makríl og makrílpaté en er líka farið að prufa sig áfram með reykt þorskhrogn og léttreyktan karfa.

Trillukarlarnir á Höfn voru tilraunadýr

„Ég dró félaga minn í þetta með mér og það var bara farið að prófa hinar og þessar aðferðir við að heitreykja. Við reyktum fleiri hundruð kíló af makríl á nokkrum mánuðum og vorum svo með tilraunadýr til að smakka afraksturinn,“ segir Ómar en tilraunadýrin voru hinir trilllukarlarnir á Höfn í Hornafirði. „Við keyrðum prufurnar út þangað sem trillukarlarnir safnast fyrir í bænum, til dæmis niður á fiskmarkað og á hafnarvogina. Þessir karlar höfðu aldrei borðað makríl og það kom þeim öllum á óvart hvað þetta var gott. Margir höfðu myndað sér skoðanir á þessu fyrirfram og sögðu að makríllinn væri bara óþverri, bara beita og ekki mannamatur. Íslendingar þekktu auðvitað ekkert makríl fyrr en hann kom að landinu um 2009. En þetta er herramannsmatur sem Evrópubúar þekkja miklu betur en við.“

22766  makrill - Sólsker
Þegar trillukarlarnir höfðu allir sammælst um bestu útfærsluna ákvað Ómar að fara með afraksturinn til Svíðjóðar í Norðurlandakeppni í smáframleiðslu matvæla. „Við bara komum, sáum og sigruðum. Þarna voru 680 keppendur og það var nú bara þannig að við fengum gullið fyrir okkar vöru.“
Til að byrja með veiddi Ómar allan makrílinn sjálfur en nú veiðir hann aðallega bolfisk. „Þegar mig vantar makríl kaupi ég hann frosinn hér á Höfn eða á Þorlákshöfn og vinn þetta þegar ég er ekki á sjónum,“ segir Ómar sem er líka farinn að framleiða makrílpaté sem vann silfurverðlaun í matvælakeppni Norræna hússins í fyrra. „Það er vaxandi sala í þessu og ég held að Íslendingar séu að komast á lagið með þetta. Ég ætla allavega að gera mitt besta til þess og hingað til hafa allir sem smakka bitið á agnið.“

22766 Ómar Sólsker

Ómar Fransson rekur Sólsker, sjávarútvegsfyrirtæki sem gerir út bát á Hornafirði ásamt matvælaframleiðslu. „Ég hef alltaf haft gaman af því að setja saman bragðtegundir,“ segir Ómar. „Sjálfum finnst mér best að setja makrílinn á smurt rúgbrauð með fersku spínati, rauðlauk og sósu sem ég geri úr hunangi, majónesi og sinnepi. Þetta er alveg rosalega gott.“

The post Allir sem smakka bíta á agnið appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652