Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fréttir og myndir af strandstað

$
0
0

 

Um hádegisbil í dag fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu um að fiskiskipið Blíða SH-277 hefði steytt á skeri skammt undan Stykkishólmi. Fjórir voru um borð. Sjómælinga- og eftirlitsskipið Baldur var umsvifalaust beðið um að halda á staðinn.

Sömu sögu er að segja um björgunarsveitina Berserki, sem er á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, auk björgunarskipsins Bjargar. Að auki voru nærliggjandi skip beðin um að halda á vettvang en fyrstu bátar á staðinn voru björgunarbáturinn Gunna Sig frá Stykkishólmi og fiskibáturinn Fjóla SH-007.

Rúmri klukkustund eftir að tilkynning um strandið barst Landhelgisgæslunni var Baldur kominn á vettvang og tók áhöfn hans að sér vettvangsstjórn. Til að gæta fyllsta öryggis var TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, einnig beðin um að halda á staðinn. Á fjórða tímanum var fiskiskipið farið að rétta sig af og skömmu síðar var það komið á flot.

Samvinna allra sem að verkefninu komu gekk með miklum ágætum og var fiskiskipið Blíða komið til heimahafnar síðdegis. Hér að neðan eru myndir sem að LHG tók af strandstað.

The post Fréttir og myndir af strandstað appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652