Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hátt í 400 manns, nánast ,,á götunni“í Reykjavík

$
0
0

 

Útigangs­fólk hef­ur búið sér svefnstað á Laug­ar­nestanga í Reykja­vík og held­ur sig þar um næt­ur. Þess­ir næt­urstaðir í borg­inni hafa reynd­ar verið fleiri og má þar t.d. nefna rjóður við Klambra­tún, Öskju­hlíðina og Örfiris­ey. Skv. upplýsingum Mbl.is sem að hafði samband við Reykjavíkurborg, ,,ligg­ur ekki fyr­ir ná­kvæm­lega hve margt þetta fólk er nú. Í byrj­un árs 2017 höfðust, skv. út­tekt, 76 manns við á göt­unni, 118 voru í gisti­skýl­um, 153 kváðust búa við ótrygg­ar aðstæður og 58 hafði verið tryggð bú­seta til lengri tíma.“

Reikna má með að fjöldinn hafi aukist sem að býr við þessar ömurlegu aðstæður í Reykjavík en skv. þessari úttekt sem að var gerð árið 2017, voru samtals 347 manns nánast ,,á götunni“ eins og sagt er, en af þeim höfðu þó 118 aðgang að gistiskýlum. 76 manns höfðu skv. tölum fyrir árið 2017, einungis götuna sem næturskjól.

Heimildarmaður Fréttatímans segist telja að nú séu mun fleiri á götunni en árið 2017 og efaðist um að svona úttekt næði að mæla fjölda þeirra sem eru á götunni. ,,Það þarf meira en að sitja í glerhúsi og pikka inn í excelskjal, til þess að fá rétta tölu. Það er stórfurðulegt að ekki skuli vera betur fylgst með þessum málaflokki en svo, að verið sé að notast við tveggja ára gamlar tölur sem að sýna líklega ekki rétta mynd af ástandinu.“ Sagði viðmælandinn sem að þekkir vel til málaflokksins.

Vigdís Hauksdóttir

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, fjallar um málið á facebooksíðu sinni og segir ,,Meirihutinn er ráðþrota í þessum málaflokki þrátt fyrir aukafund í borgarráði í upphafi kjörtímabilsins þar sem öllu fögru var lofað. Til að bíta höfuðið af skömminni á að setja niður húsnæði fyrir þennan hóp að Héðinsgötu 8 af öllum stöðum – við hliðina á meðferðarúrræðum sem hafa skilað miklu fyrir samfélagið.

Ég lýsi yfir fullri ábyrgð meirihlutans á þeirri ákvörðun – ég ásamt Baldri Borgþórssyni höfum haft uppi mikil mótmæli í öllum ferli þessa máls.

Þar að auki er um tímabundna ráðstöfun að ræða – einungis til fjögurra eða fimm ára. Það vantar alla langtímahugsun og aðgerðir í þennan málaflokk og það er algjörlega til skammar.“

 

The post Hátt í 400 manns, nánast ,,á götunni“ í Reykjavík appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652