Kvikmyndin Straight Outta Compton er komin í kvikmyndahús hér en í henni er fjallað um sögu rappsveitarinnar alræmdu, N.W.A. Sveitin náði miklum vinsældum á níunda áratugnum og þótti marka bæði djúp spor í tónlistarmenninguna – en kannski ekki síður í dægurmenninguna vestanhafs. Einn af fimm meðlimum N.W.A., Eazy-E, lést úr alnæmi árið 1995 en hinir meðlimirnir hafa átt ólíku gengi að fagna síðan sveitin var upp á sitt besta.

Dr. Dre
Auðævi hans eru metin á 90 milljarða íslenskra króna.
Dr. Dre, eða Andre Romelle Young eins og hann heitir réttu nafni, er næst ríkasti maðurinn í hip hop heiminum í dag samkvæmt lista Forbes. Aðeins Puff Daddy er með feitari bankabók. Dre, sem er fimmtugur, á þátt í velgengni rappara á borð við Eminem, Snoop Dogg og 50 Cent. Græddi 500 milljónir Bandaríkjadala í fyrra þegar Apple keypti Beats, streymisþjónustuna og heyrnartólamerki hans. Dr. Dre hefur verið sakaður um ofbeldi gegn konum og í fjölmiðlum hefur verið gagnrýnt að sá þáttur í fari hans komi ekki fram í Straight Outta Compton. Dre hefur beðist afsökunar á framferði sínu á yngri árum. „Fyrir tuttugu og fimm árum var ég ungur maður sem drakk of mikið og vissi ekkert hvernig ég vildi haga lífi mínu. Ég hef verið giftur í nítján ár og á hverjum degi vinn ég að því að verða betri maður fyrir fjölskyldu mína. Ég geri allt sem ég get til að líkjast ekki þessum manni aftur,“ segir hann.

Ice Cube
Auðævi hans eru metin á 18 milljarða króna
Ice Cube heitir réttu nafni O’Shea Jackson og er 46 ára. Hann hefur malað gull á leik í bíómyndum auk þess að koma reglulega fram í auglýsingum. Nú síðast í stórri herferð fyrir bjórinn Coors Light. Ísmolinn lék fyrst í hinni goðsagnakenndu mynd Boyz N The Hood árið 1991 og hefur síðan leikið í um þrjátíu myndum auk þess að skrifa og framleiða margar þeirra. Á ferilskránni eru fjórar myndir sem gert hefur verið framhald af og notið hafa mikilla vinsælda; Friday-myndirnar, Barbershop, Ride Along og 21. Jump Street. Myndir hans hafa tekið inn 1,7 milljarð Bandaríkjadala í kvikmyndahúsum vestanhafs.

MC Ren
Seldi 960.000 eintök af sólóplötum sínum
MC Ren heitir réttu nafni Lorenzo Jerald Patterson og er 46 ára. Fyrsta sólóplata hans, EP-platan Kizz My Black Azz, seldist í 414 þúsund eintökum. Hann vinnur nú að annarri EP-plötu sem á að koma út seinna á árinu.

Dj Yella
Seldi 68.000 eintök af sólóplötu sinni
Dj Yella heitir réttu nafni Antoine Carraby og er 47 ára. Hann hefur sent frá sér eina sólóplötu, One Mo Nigga ta Go sem kom út 1996. Eftir að síminn hætti að hringja í hljóðverinu sneri Yella sér að klámiðnaðinum. Hann hefur framleitt yfir 300 klámmyndir, leikstýrt 26 og leikið í þremur.
The post Tveir milljarðamæringar og einn klámmyndaleikari appeared first on FRÉTTATÍMINN.