Á sunnudagskvöldum í sumar sýndi RÚV skemmtilega heimildarþætti um merka Íslendinga sem unnir voru úr safni Sjónvarpsins. Þessir þættir voru afar áhugaverðir og skemmtilegir í alla staði. Mikið var fjallað um söngvara og leikara í þessum þáttum og safn Sjónvarpsins er alger gullkista þegar kemur að heimildum. Það væri mjög gaman ef RÚV gerði meira af þessu. Þetta er gríðarlega merkileg dagskrárgerð því söguna verður að rifja upp með reglulegu millibili.
Ég er ekki það gamall að muna eftir mörgu af þessu efni og þess vegna var virkilega skemmtilegt að sjá mörg af þessum viðtölum, og myndefni. Kynslóðin sem er að alast upp í dag, og nokkrar á undan, hafa mjög gott af því að sjá part af sögunni og fræðast um allt það góða fólk sem hefur verið í forystuhlutverki í sínu fagi. RÚV er vagga menningar á Íslandi og saga þjóðarinnar er í safni Sjónvarpsins. Þetta verður að bera á borð mjög reglulega. Ég mæli með því að RÚV leggi þunga á það að framleiða meira efni sem auðsótt er í safninu. Meiri sögu, minna bruðl.
Hannes Friðbjarnarson
The post Meira svart-hvítt appeared first on FRÉTTATÍMINN.