Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Þyrlan kölluð út vegna lítillar flugvélar

$
0
0

 

TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út að beiðni lögreglunnar á Vesturlandi vegna lítillar flugvélar sem hlekktist á í flugtaki í Svefneyjum síðdegis í dag. Tveir voru um borð. Þeir komust sjálfir út úr vélinni og sluppu óslasaðir.

TF-GRO flutti fulltrúa rannsóknarnefndar samgönguslysa á vettvang sem og lögreglumenn frá Stykkishólmi. Flugmaður og farþegi vélarinnar voru fluttir til Reykjavíkur með þyrlunni.

Þetta var annað útkall þyrlusveitarinnar í dag en laust fyrir klukkan tíu í morgun var óskað eftir þyrlu vegna veikinda á Hornströndum.

TF-GRO lenti ofan við neyðarskýlið í Hlöðuvík og flutti sjúklinginn til Reykjavíkur.

The post Þyrlan kölluð út vegna lítillar flugvélar appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652