Það er komið fram í september og sumarið sem aldrei kom er að skipta sér út og við öll að setja okkur í stellingar fyrir það sem koma skal. Það er næsta öruggt að það er kaldari tími framundan, en kannski erum við heppin og fáum einhverja framlengingu og milt veður næstu vikur. Það væri örugglega gott fyrir sálartetrið, en þessi tími er annars umvafinn dulúð, krafti og fegurð. Skólarnir eru byrjaðir og starfsemi fyrirtækja að komast á skrið með undirbúningi fyrir veturinn. Það er eitthvað ánægjulegt við haustið, maður er fullur af orku eftir sumarið og reiðubúinn að takast á við verkefni þau sem liggja fyrir með eftirvæntingu og þá er gott að komast aftur í rútínuna sína.
Ég er hrifinn af þessum tíma, hann er fallegur, sérstaklega þegar litir umhverfisins breytast og næturfrost og norðurljós láta á sér kræla á ný. Annríkið eykst á þessum sama tíma, dagarnir verða skipulagðari og verkefnin fjölbreytt fram að næsta sumri, hvort heldur sem við erum í vinnu eða skóla.
Margir eru staðráðnir að komast í gott form eftir sumarið, ætla að æfa af krafti að nýju og bæta mataræði sem oft vill versna í fríinu. Líkamsræktarstöðvarnar fyllast af fólki sem hefur „trassað“ hreyfingu sína um sumarið og vill ná af sér grillsteikunum. Í það minnsta að komast í kjólinn fyrir jólin, vera klúbb fitt, sjokkbylgja sig og svo framvegis. Það er allt gott og blessað og vonandi ná allir þeim markmiðum sem þeir hafa sett sér. Aðalatriðið er að fylgja almennum leiðbeiningum og fara ekki fram úr sjálfum sér með ofþjálfun eða rangri líkamsbeitingu, ofneyslu próteindrykkja og fæðubótarefna svo eitthvað sé nefnt. Þá er alltaf góð regla að láta fagfólk leiðbeina sér sem hefur þekkingu á starfsemi líkamans og getur sagt manni fyrir verkum í þjálfun og hvað næringu snertir.
Mikilvægast er að horfa til þeirra þátta sem skipta okkur öll máli, en það eru reglubundin hreyfing, hollt mataræði, nægur svefn og hæfilegt álag. Allir ættu að eiga skilgreind verkefni við sitt hæfi og vera í góðum samskiptum við annað fólk. Þetta eru þeir þættir sem teljast til heilbrigðra lífshátta og skila sér í bættri heilsu og líðan.
Á þessum tíma að hausti er mikilvægt að muna eftir þessum grundvallarþáttum, þeir sem eru undir miklu álagi og streitu og hugsa síður um sjálfan sig eru líklegri til að veikjast. Þá er einnig talið að sjúkdómar ýmis konar geti átt orsök sína í slíku ójafnvægi og hefur verið bent á flesta lífsstílssjúkdómana í því samhengi sem og krabbamein. Þá er skynsamlegt að verjast inflúensu með bólusetningu, en búast má við að hún stingi sér niður að venju seint í haust. Það er talið ráðlegt að nota bætiefni sem sannað hafa gildi sitt eins og lýsi eða D-vítamín sem okkur flest skortir yfir vetrartímabilið. Sértæk bætiefni ætti að skoða í samráði við sinn lækni. Þeir sem reykja ættu að stefna að því að hætta því, en víst er að reykingafólki er hættara við sjúkdómum í öndunarfærum svosem eins og berkjubólgu og lungnabólgu.
Því er skynsamlegt að verja hæfilegum tíma til að rækta sjálfan sig og sína nánustu. Það er auðvitað ekki til nein töfraformúla þegar kemur að heilbrigði einstaklinga sem eru jafn mismunandi og þeir eru margir. Þó er ljóst að ef við náum því markmiði að halda góðu jafnvægi milli þeirra þátta sem ég taldi upp að ofan og hugsum jákvætt og uppbyggilega er líklegra en ekki að heilsa okkar verði góð.
Tökum því á móti haustinu og komandi vetri með gleði og eftirvæntingu, fögnum fjölbreytileika þeirra verkefna sem fyrir okkur liggja og setjum markið hátt auk þess að muna eftir að njóta lífsins, því það mun svo sannarlega skila sér í bættri heilsu okkar.
Teitur Guðmundsson læknir
The post Heilsan að hausti appeared first on FRÉTTATÍMINN.