37% aðspurðra keypt lyfseðilsskyld lyf á svörtum markaði

Allt frá ársbyrjun 2000 hefur SÁÁ gert mánaðarlegar kannanir á verðlagi á ólöglegum vímuefnum „á götunni.“ Allir innritaðir sjúklingar á sjúkrahúsinu Vogi, sem hafa heilsu til, taka þátt í könnun þar sem spurt er hve margir þeirra hafa keypt slík efni og hvað þeir greiddu fyrir efnin. Meðaltalsverð er síðan reiknað.
Niðurstöður frá upphafi er hægt að lesa í pdf-skjali hér að neðan. Skjalið hefur verið uppfært miðað við nýjustu upplýsingar í júnílok 2019.
Alls svöruðu samtals 154 einstaklingar verðkönnun á fjögurra mánaða tímabili, frá mars-júní 2019. Í ljós kom að 62% aðspurðra höfðu keypt ólögleg vímuefni/lyf, eða 95 einstaklingar. Meðalaldur þeirra var rúm 32 ár en meðalaldur hinna sem ekki höfðu keypt slík efni var 43,5 ár.
Tæp 53% höfðu keypt örvandi vímuefni, eða 81 einstaklingur. Flestir keyptu kókaín (42%) og/eða amfetamín (40%). Rúm 41% keypti kannabisefni (64), langflestir gras (39%). Alls sögðust 57 einstaklingar, eða 37% aðspurðra, hafa keypt lyfseðilsskyld lyf á svörtum markaði. Ellefu einstaklingar keyptu ofskynjunarlyfið LSD og 8 keyptu ketamín. Önnur lyf ganga kaupum og sölum, eins og Lyrica og Gabapentin. Um 28% aðspurðra, eða 43 einstaklingar, höfðu notað kannabisefni í rafrettur.
Á þessu fjögurra mánaða tímabili höfðu 16% aðspurðra sprautað vímuefnum í æð. Þessir einstaklingar höfðu flestir fengið nálar og sprautur í apótekum. Aðrir möguleikar voru Frú Ragnheiður, Konukot, frá vinum og annars staðar. Flestir nefndu fleiri en einn stað. Verdkonnun SAA Juni 2019
,,Ég er hættulegri en efnin sem þeir eru að taka“ – Allt vaðandi í fíkniefnum í Reykjavík
The post 37% hafa keypt læknadóp, afgreitt af Apótekum og endar á svörtum markaði appeared first on Fréttatíminn.