Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fíkniefnahundur öflugur í að finna falin eiturlyf

$
0
0

 

Tveir aðilar gistu í fangageymslum lögreglunnar á Norðurlandi vestra eftir að haldlögðu voru tæplega 80 grömm af meintum kannabisefnum í söluumbúðum. Voru aðilarnir stöðvaðir við akstur og mældist kókaín og kannabis í þvagi ökumanns. Lögreglan naut aðstoðar fíkniefnahunds við leit en efnin voru vandlega falin í vélarými bifreiðarinnar.

Fíkniefnahundur lögreglu, ásamt lögreglumönnum, hafa hins vegar haft í nógu að snúast frá því um síðustu helgi en þá hafa alls 6 ökumenn verið stöðvaðir í akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna og mál er varða vörslu ávana- og fíkniefna voru 5 talsins, þar voru einnig haldlögð meint kannabisefni ætluð til sölu og vógu þau ríflega 60 grömm. Þau efni komu til vegna nokkurra húsleita og leitum í ökutækjum.

Fíkniefnamálum í embættinu hefur fjölgað gríðarlega og er það verulegt áhyggjuefni.

Lögreglan minnir enn og aftur á fíkniefnasímann 800-5005, sem er gjaldfrjálst símanúmer, þar sem unnt er að koma á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.

The post Fíkniefnahundur öflugur í að finna falin eiturlyf appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652