Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Rostungar til forna við Ísland – náttúrusaga og mannvistfræði

$
0
0

 

Fyrsta rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða verður haldið miðvikudaginn 9. október kl. 20 í sal safnaðarheimilis Neskirkju. Hilmar J. Malmquist, líffræðingur og forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, og Bjarni F. Einarsson, fornleifafræðingur og forstöðumaður Fornleifafræðistofunnar, flytja erindi sem ber titillinn:

Rostungar til forna við Ísland – náttúrusaga og mannvistfræði

Tilvist rostunga á Íslandi á forsögulegum tíma og hvarf þeirra um og upp úr landnámi hefur löngum valdið fræðimönnum heilabrotum. Hve mikið var hér af rostungum og var um að ræða flækingsdýr, eins og nú í seinni tíð, eða staðbundinn íslenskan stofn? Hver urðu örlög rostunganna? Hilmar og Bjarni munu fjalla m.a. um þessi atriði og byggja þeir umfjöllunina á nýbirtum niðurstöðum í fjölþjóðlegri rannsókn sem Náttúruminjasafn Íslands fór fyrir. Niðurstöðurnar, sem grundvallast á DNA-greiningu erfðaefnis hvatbera og C14-aldursgreiningu á beinaleifum rostunga, benda til þess að hér hafi verið sérsíslenskur stofn um árþúsundabil, allt frá 8000 árum f. Krist þar til 1200 eftir Krist, þegar hann hverfur. Skýringa á útdauða íslenska rostungsins er leitað í ofveiði ásamt hlýnandi loftslagi og áhrifum eldgosa.

Umfjöllun um rannsóknina á heimasíðu Náttúruminjasafnsis: https://nmsi.is/frettir/serislenskur-rostungsstofn-hvarf-vid-landnam/

Grein í MBE: https://academic.oup.com/mbe/advance-article/doi/10.1093/molbev/msz196/5564176

Viðburðurinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/2130123107091845/

Íslenskir víkingar taldir hafa útrýmt rostungum

The post Rostungar til forna við Ísland – náttúrusaga og mannvistfræði appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652