Orsakir
Skortur á efninu Intrinsic Factor sem er framleitt í maganum, er algengasta orsök skorts á B12. Hlutverk efnisins er að flytja B12 úr fæðunni og inn í blóðrásina. Orsakir skorts á Intrinsic Factor eru myndun mótefna gegn þeim frumum sem framleiða efnið. Þessar frumur deyja og með tíð og tíma þróast B12 skortur og blóðleysi vegna þess sem nefnist blóðhvarf.
Einkenni
Fyrstu einkenni eru þreyta, ör hjartsláttur, andþyngsli og svimi. Ef blóðleysið er mjög mikið getur fólk fundið fyrir hjartakveisu, höfuðverk og verkjum í fótum við gang vegna lélegs blóðflæðis. Þar að auki eru mörg einkenni sem benda til skorts á B12, svo sem rauð, ert og jafnvel slétt tunga, minnkað bragðskyn, meltingarörðugleikar, vindgangur og breyttar hægðavenjur. Skortur á B12 kemur einnig niður á taugafrumunum sem hefur áhrif á húðskyn og minnkar titringsskynið. Þegar á líður koma fram gang- og samhæfingartruflanir ásamt stjarfalömun. Einkennin geta einnig verið andleg svo sem minnisleysi, þunglyndi og vitglöp. Hjá sumum einstaklingum geta fyrstu einkenni verið frá taugakerfinu.
Batahorfur
Án meðferðar leiðir sjúkdómurinn til dauða. Lækning fæst með því að uppræta orsökina eða bæta upp vítamínskortinn með sprautum. Ef byrjað er of seint á meðferð er hætta á skemmdum á taugakerfi. Með því að neyta fjölbreyttrar fæðu og fylgjast með einkennum og leita læknishjálpar verði þeirra vart er hægt að taka á B12 vítamínskorti.
Heimild: doktor.is
The post Þjáist þú af B12 vítamínskorti? appeared first on Fréttatíminn.