WOW air mun fljúga fjórum sinnum í viku til Stokkhólms frá og með næsta vori. Verður flogið á mánudögum, þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum allan ársins hring. Fyrsta flugið verður 19. maí næstkomandi.
Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að flogið verði til Stockholm Västerås flugvallar en frá flugvellinum séu greiðar samgöngur bæði með lest og rútu til miðborgar Stokkhólms. Flugvöllurinn þjónar einnig borgunum Uppsölum, Västerås, Örebro og Eskilstuna.

„Það er ánægjulegt að tilkynna áætlunarflug til Stokkhólms en ég bjó í Svíþjóð stóran hluta æsku minnar og hef því sterkar taugar til lands og þjóðar. Flug til Stokkhólms allan ársins hring er liður í stækkun WOW air og styrkir jafnframt leiðarkerfi félagins. Við höfum fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir lægra flugverði frá þessum markaði og meira framboð af lægri fargjöldum mun auka enn vöxt fjölda sænskra ferðamanna til landsins ásamt því að Svíar geta nýtt sér tengiflug til Bandaríkjanna“ segir Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, í fréttatilkynningu.
Í Svíþjóð búa um níu milljónir manna og er landið fjölmennasta land Skandinavíu. Ferðamönnum til Íslands frá Svíþjóð hefur fjölgað síðustu ár og eru Svíar í 7. sæti yfir þær þjóðir sem sóttu Ísland heim á síðasta ári. Um 41 þúsund Svíar komu til landsins árið 2014 samkvæmt Ferðamálastofu.
The post WOW flýgur til Stokkhólms: Skúli með sterkar taugar til Svíþjóðar appeared first on Fréttatíminn.