Tónlistarmaðurinn Justin Bieber er leið af landi brott eftir viðburðaríka dvöl hér á landi í vikunni. Samkvæmt upplýsingum Fréttatímans var Bieber á Keflavíkurflugvelli í morgun ásamt lífvörðum sínum og fylgdarliði.
Fjölmiðlar hafa fylgst vel með ferðum hins kanadíska Biebers síðustu daga. Hann kom hingað til lands á mánudag og spókaði sig meðal annars í Reykjanesbæ. Einkaviðtal DV við kappann vakti mikla athygli og umtal. Þá fór Bieber-inn auðvitað til Vestmannaeyja og skálaði þar í rauðvíni og sitthvað fleira.
Um ein milljón hefur lækað nærbuxnamynd poppstjörnunnar og erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um uppátækið.
Þá gisti Justin Bieber á Hótel Rangá og með síðustu verkum hans hér á landi var að bjóða ungum stúlkum upp á hótelherbergi sitt.
A photo posted by Justin Bieber (@justinbieber) on
The post Eftirminnileg heimsókn á enda: Bieber á heimleið appeared first on Fréttatíminn.