Samræður aðila vinnumarkaðarins og ríkissáttasemjara um varanlega sátt á vinnumarkaði ganga vel, að sögn ríkissáttasemjara, en engin niðurstaða er enn í sjónmáli.
Staðan er einfaldlega sú að aðilar vinnumarkaðarins eru enn að ræða saman með aðkomu minni og næsti fundur er boðaður á morgun, föstudag,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari um stöðu viðræðna um sátt á vinnumarkaði. „Það er ekki komin ákveðin niðurstaða í neitt en það eru ákveðin atriði sem formenn heildarsamtakanna eru að skoða inni í sínu baklandi.“
Aðilar vinnumarkaðarins hafa fundað stíft í húsakynnum ríkissáttasemjara undanfarið og er markmiðið með fundunum meðal annars að koma í veg fyrir yfirvofandi verkföll og ná varanlegri sátt á vinnumarkaði. Bryndís segir þetta samtal engan veginn nýtilkomið, það hafi staðið yfir í um það bil tvö ár, en í það hafi færst ákveðinn þungi og búið sé að halda fimm fundi það sem af er september. „Það er dálítil pressa á okkur því langstærsti hluti opinbera markaðarins á eftir að semja, meira og minna öll sveitarfélögin og um helmingur starfsmanna hjá ríkinu, auk hluta af almenna markaðnum.“
Bryndís segir hugmyndina um að taka upp vinnumarkaðslíkan að norrænni fyrirmynd hafa verið uppi lengi en nú sé meiningin að koma henni í framkvæmd. Spurð hvað það þýði á mannamáli segir hún það felast í því að aðilar á vinnumarkaði komi sér saman um ákveðið vinnulag við gerð kjarasamninga. „Það felst meðal annars í því að sammælast um hverjir það eru sem ákveði það svigrúm sem er til staðar í samfélaginu og síðan hangir auðvitað ýmislegt fleira á þeirri spýtu. Það er verið að ræða breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinni, og almennt bara stóru myndina í sambandi við vinnumarkaðinn og kjarasamningagerð.“
Spurð um hvort eitthvað sé hæft í orðrómi um breytingar á lífeyrisréttindum í stað launahækkana segir Bryndís það vera eitt af því sem verið sé að ræða. „Það er hins vegar ekkert komið á það stig að hægt sé að segja frá því opinberlega. Það er ekkert samkomulag komið, við erum bara að ræða saman og það gengur ágætlega.“
The post Skoða breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinni appeared first on Fréttatíminn.