Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Þrjár kynslóðir af kokteilum: Old Fashioned

$
0
0
Ásgeir Már Björnsson og kokteilar á Slippbarnum
Old Fashioned

Upp úr 1800 voru menn farnir að gera drykki sem samanstóðu af sykri, bitter og áfengi. Old Fashioned nafnið kom fyrst fram í bók Jerry Thomas árið 1863, Bartenders Guide: How To Mix Drinks, og þá sem gin-drykkur. Árið 1880 er svo Old Fashioned nefndur í blaðagrein með viskíi. Svo heyrist lítið af þessum drykk fyrr en upp úr 1930.

60 ml Bourbon (Ég notaði Bulleit)
2 döss Angostura bitter
10 ml sykur síróp (1,5 sykur á móti 1 vatni)
Appelsínubörkur

Aðferð
Í upprunalegu uppskriftinni er sykurmoli settur í glasið og svo skvett vatni eða seltzer yfir og það látið leysast upp. Þú getur allt eins notað sykursíróp og sparað þér þær mínútur sem tekur sykurinn að leysast upp. Að mínu mati eru báðar aðferðir jafn réttar.
Ég set sykursírópið fyrst í glasið, svo bitter og bourbon og blanda saman áður en ég set ís út í. Eftir að ísinn er kominn í hræri ég drykkinn í „balance“, sem sagt kæli- og vatnsblanda með því að hræra þar til hann er tilbúinn. (Þetta á við alla drykkina hér) Svo er þetta skreytt með appelsínuberki og ég kreisti olíuna úr honum í drykkinn. Mér finnst mikilvægt að leggja appelsínubörkinn ofan á ísinn, en ekki láta hann detta ofan í drykkinn því ilmurinn á að vera fyrsta upplifun þín af drykknum.

 Ási á Slippbarnum.
Ási á Slippbarnum.
Ásgeir Már Björnsson og kokteilar á SlippbarnumDon Lockwood

Þetta er önnur útfærsla af Old Fashioned. Þessi útgáfa kemur frá barnum Dutch Kills í Queens en þeir komu hingað á Reykjavík Bar Summit fyrr á árinu. Þetta er ein af þeim útgáfum af þessum kokteil sem mér hefur fundist skemmtilegust. Hann er flókinn í bragði og skemmtilegur.

30 ml Bourbon
30 ml 10%
2 döss súkkulaði bitter
10 ml hlynsíróp
Appelsínubörkur

Aðferð
Við notum hlynsíróp sem sætu og Bourbon-viskí. Svo notum við skoskt, blandað viskí sem heitir Naked Grouse en 10% af því er Laphroaig sem gefur reyk keim. Hrært í „balance“. Skreytt með appelsínuberki og olían úr honum kreist út í drykkinn.

Sazerac

Þessi er náskyldur Old Fashioned og kemur frá New Orleans þar sem var mikið af frönskum áhrifum. Upprunalega var hann gerður með koníaki, Peychaud-bitter og Absint en upp úr 1863 geisaði lús á vínviðinn í Frakklandi þannig að koníak varð ófáanlegt. Þá var farið að gera hann með Rye-viskíi.

Ásgeir Már Björnsson og kokteilar á Slippbarnum

45 ml Knob Creek rye viskí
2 döss Peychaud bitter
10 ml sykur síróp (má vera minna eftir smekk, ég hef líka séð uppskrift án sykurs)
Glas húðað að innan með Absinth
Sítrónubörkur

Aðferð
Þessi er gerður í tveimur glösum sem er kannski ekki skrítið því það var varla til mikið af sérhönnuðum baráhöldum þegar fyrstu kokteilarnir voru gerðir. Annað glasið er kælt með klaka meðan blandað er í hinu. Í upprunalegu uppskriftinni voru notaðir 15 ml af Absinth sem er alltof mikið. Ég spreyja smá Absinth í glasið, aðallega upp á ilminn. Drykkurinn er borinn fram án klaka en við notum sítrónubörk til að fríska upp á hann.

Ljósmyndir/Hari
Ljósmyndir/Hari
Fat Duck Sazerac

Í þessari útgáfu notum við koníak eins og í þeirri upprunalegu, en það er búið að fikta í því. Þetta er aðferð sem heitir fat washing. Þá tekurðu fljótandi fitu og setur út í áfengið. Svo kælirðu það þar til hún harðnar og síar aftur frá. Þetta breytir að einhverju leyti bæði ilm og bragði. Við notum örlítið meiri sykur og annan bitter, Aromatic Bitter, sem hefur mikinn negul og vetrarbragð. Svo setjum við vel af sítrónu til að lyfta honum upp. Þetta er hálfgerður konfektmoli.

60 ml andafituvaskað koníak
2 döss Aromatic bitter
15 ml sykur síróp
Glas húðað að innan með Absinth
Sítrónubörkur

Þess má geta að það eru til endalausar uppskriftir að þessum tveimur kokteilum. Allir kokteilarnir fjórir fást á Slippbarnum.

The post Þrjár kynslóðir af kokteilum: Old Fashioned appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652