Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Bleikur litur og krabbamein

$
0
0

Október er átaksmánuður um krabbamein kvenna á Íslandi og heldur leitin áfram að týndu konunum sem ekki mæta nægjanlega markvisst til leghálsskoðunar einhverra hluta vegna. Þess utan er lögð áhersla á ristilkrabbamein og auðvitað brjóstakrabbamein sem er algengasta mein kvenna á Vesturlöndum. Mikil umræða hefur skapast á undanförnum árum um það hvort ekki megi gera betur í tengslum við forvarnir gegn krabbameini og þá sérstaklega í því að finna meinin nægjanlega snemma til að bæta megi horfur sjúklinga.

Það er auðskilið að sjúkdómur sem er staðbundinn og hefur ekki náð að breiða úr sér gerir meðhöndlun einfaldari og árangursríkari. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum hverju sinni um það hvaða þætti beri að skoða, á hvaða aldri og hvernig. Enn virðist þó einhver bið eftir samræmdum aðgerðum varðandi ristilkrabbamein og skimun gegn þeim vágesti hérlendis, en unnið er að skipulagi hópleitar. Leiðbeiningar eru mismunandi milli landa og má nefna að í Bandaríkjunum, samkvæmt CDC (Centers for Disease Control), er mælst til þess að skimun gegn leghálskrabbameini með stroki hefjist við 21 árs aldurinn og síðan á 3ja ára fresti, á Íslandi er miðað við 23 ár. Brjóstamyndataka fer fram við 50 ára aldur á 2ja ára fresti, svo dæmi séu tekin þar, en hér byrja konur við fertugt. Víða er mælt með skimun fyrir ristilkrabbameini frá 50 ára aldri.

Teitur Guðmundsson læknir.
Teitur Guðmundsson læknir.

Þróunin og markvissar forvarnir

Í baráttunni við krabbamein er nauðsynlegt að þekkja orsakir fyrir þeim sem í flestum tilvikum eru margar og tengjast erfðum og ýmsum umhverfisþáttum auk neysluvenja og lífsstíl. Það að lifa heilsusamlegu lífi verður að telja bestu almennu forvörnina. Mikill munur er á milli heimshorna hvaða krabbamein eru algengust, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, fræðsla og aldur skipta hér miklu máli en krabbamein er yfirleitt sjúkdómur efri áranna. Dæmi um áhættuþátt sem á sama tíma flokkast undir sjúkdóm er HPV veirusýking sem er talið öruggt í dag að megi rekja sem orsök krabbameina í leghálsi. Því er markvisst bólusett gegn slíkum sjúkdómi hjá stúlkum og hefur verið gert um nokkurra ára skeið. Það er engu að síður svo að hópleit er enn ráðlögð þrátt fyrir góða vörn af bóluefninu. Margir mæla með bólusetningu gegn lifrarbólgu B sem getur valdið lifrarkrabbameini, en það er sjaldgæft og hefur ekki verið mikið gert hérlendis.

Hvað varðar lungnakrabbamein eru enn deildar meiningar um skimun. Það hefur verið skoðað hvort tölvusneiðmyndatækni með lágri geislun geti hentað fyrir ákveðna hópa sem hafa reykt lengi. Þar er miðað við 30 pakkár sem jafngildir einum pakka á dag í 30 ár, þeir sem reykja enn, eða hættu á síðastliðnum 15 árum og eru á aldursbilinu 55-74 ára. Það á enn eftir að koma í ljós hvað verður á Íslandi með slíka skimun. Mælst er til þess að læknar séu vakandi með tilliti til húðbreytinga hjá sjúklingum sínum og ýmsar leiðir hafa verið þróaðar til að finna sortuæxli í húð, en engin er nægjanlega góð til að styðja skimun. Aðalatriði er að vera vakandi fyrir einkennum krabbameina, þekkja þau og sinna þeim forvörnum sem í boði eru.

Teitur Guðmundsson, læknir.

The post Bleikur litur og krabbamein appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652