Hildur Gunnarsdóttir greindist með beinþynningu aðeins 37 ára gömul. Hún segir sjúkdóminn falinn og telur mikilvægt að breyta þeirri sýn sem samfélagið hefur á beinþynningu, það eru ekki einungis gamlar og grannar konur sem fái beinþynningu. Með stöðugri meðferð hjá sjúkraþjálfara og réttum lyfjum tekst Hildi að halda beinþynningunni í skefjum en hún lifir þó í stöðugri hættu á að brotna við minnsta tilefni.
Hildur Gunnarsdóttir er fimmtug þriggja barna móðir. Hún fann fyrir bakverkjum á meðgöngu tvö og þrjú og leitaði til sjúkraþjálfara á síðustu meðgöngunni. „Grindargliðnun var talin eðlilegasta orsökin en eftir fæðinguna versnaði ég rosalega í bakinu. Eftir myndatöku og rannsóknir kom í ljós að ég var með beinþéttni á við níræða konu og fjögur samföll í hryggnum,“ segir Hildur. Læknarnir áttu erfitt með að greina ástæður beinþynningarinnar. „Það var ekki hægt að rekja þetta til hormóna og það er í lagi með kalkið í blóðinu og ég er há í d-vítamíni,“ segir Hildur, sem þurfti að hætta að vinna fljótlega eftir greininguna. „Ég varð ekki vinnufær fyrr en fimm árum seinna og það var rosalega erfitt að koma sér aftur í gang.“
Beinþynning er falinn sjúkdómur
Í dag er Hildur í stöðugri sjúkraþjálfun og tekur lyf sem auka beinþéttni. „Ég þarf alltaf að vera meðvituð um hvað ég er að gera. Ég fer til dæmis ekki út ef það er hálka, nema bara beint upp í bíl. Þetta getur því verið hamlandi og ég þarf alltaf að hafa á bak við eyrað hvað ég má og má ekki gera.“ Hildur segir einnig að framtíðin sé óljós hvað varðar beinþéttnina. „Ég veit í raun ekki hvernig ég verð þegar ég eldist, en ég verð bara að taka einn dag í einu.“ Hildur segir beinþynningu vera afar falinn sjúkdóm í samfélaginu og því þurfi að breyta. „Eftir meðgöngu númer tvö fór ég í rannsóknir þar sem kom í ljós úrkölkun úr hryggnum og ég hefði kannski átt að fylgja því eftir en mér datt engan veginn í hug að um beinþynningu væri að ræða því maður hugsar alltaf um gamlar konur þegar kemur að beinþynningu og samfalli í hrygg.“
Hildur segir því nauðsynlegt að opna umræðuna og við það megi alls ekki gleyma karlmönnunum. „Bróðir minn sem er ekki orðinn fimmtugur er einnig með beinþynningu. Það þurfa því allir að hlusta á líkamann. Óeðlilegur fjöldi beinbrota getur verið vísbending um beinþynningu, og það er alls ekki víst að beinþynning sjáist í röntgen og því er mikilvægt að fara í sérstaka beinþéttnimælingu, ásamt því að hreyfa sig reglulega og taka kalk og D-vítamín,“ segir Hildur. Beinþéttnimæling er einföld í framkvæmd og boðið er upp á slíka á Landspítalanum í Fossvogi og einnig í verslunum Lyfju í Lágmúla og á Smáratorgi.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
The post Með beinþéttni á við níræða konu appeared first on Fréttatíminn.