Nýtt og fullkomið varðveisluhús Borgarsögusafns Reykjavíkur var opnað í Kistuhyl, við Árbæjarsafn, síðastliðinn miðvikudag. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði húsið og flutti inn í það fyrsta safngripinn.
Hið nýja varðveisluhús er langþráður áfangi fyrir safnastarf í Reykjavík, því það er hið fyrsta í eigu borgarinnar þar sem safngripum eru búin bestu hugsanlegu varðveisluskilyrði, að því er fram kemur í tilkynningu Borgarsögusafnsins. Í húsinu er fullkomið loftræstikerfi sem tryggir jafnt og stöðugt hita- og rakastig. Einnig er í hluta hússins slökkvikerfi þar sem notast er við gas til að slökkva eld, í stað vatns sem skemmt getur viðkvæma safngripi.
Borgarsögusafn Reykjavíkur varðveitir um 32.000 lausa gripi fyrir utan fornleifar, hús og ljósmyndir. Þeir gripir tengjast bæði heimilishaldi og atvinnulífi í höfuðborginni, og eru margir þeirra ómetanlegir og óbætanlegir. Safngripirnir eru mikilvægar sögulegar heimildir, og er góður og vel varðveittur safnkostur sömuleiðis forsenda þess, segir enn fremur, að safnið geti sett upp fróðlegar og áhugaverðar sýningar um sögu Reykjavíkur.
The post Fullkomið varðveisluhús Borgarsögusafns appeared first on Fréttatíminn.