Northern Future ráðstefnan var haldin á Grand Hótel í Reykjavík í gær og fyrradag, 28. og 29. október. Á fundinum voru forsætisráðherrar allra Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og Bretlands. Ráðstefnunni er henni ætlað að vera tækifæri til að miðla þekkingu og vettvangur fyrir samtal milli landanna og var fókusinn í ár á framtíð skapandi greina og nýsköpun í opinberri stjórnsýslu.
Þetta var í fimmta sinn sem ráðstefnan var haldin en David Cameron setti hana fyrst árið 2011. Heimsókn hans til Íslands markar nokkur tímamót því hann er fyrsti forsætisráðherra Bretlands til að sækja Ísland heim síðan Winston Churchill kom hingað árið 1941. Heimsóknin vakti töluverða athygli í Bretlandi en þar höfðu fjölmiðlar spáð því að Cameron myndi nota hana til að svara efasemdarmönnum í Evrópumálum, en ekkert varð úr því heldur lagði hann áherslu á að þátttakendur ráðstefnunnar væru þar fyrst og fremst til að hlusta og læra.
Á miðvikudagskvöldið snæddu þátttakendur saman kvöldverð og hafði Cameron orð á því morguninn eftir hversu afslappað andrúmsloftið hefði verið, enginn hefði verið með punkta né skrifaða ræðu. Reyndar höfðu flestir forsætisráðherrarnir orð á því hversu afslappað andrúmsloftið í hópnum væri og vitnuðu í orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem hafði bent á það kankvís í opnunarræðu sinni að þátttakendur væru svo afslappaðir að þeir hefðu allir losað sig við bindin.
Fjölmargir íslenskir sérfræðingar miðluðu þekkingu sinni á ráðstefnunni sem endaði með blaðamannfundi. Þar var Cameron meðal annars spurður út í samskipti Íslands og Bretlands, hvort Íslendingar ættu inni afsökunarbeiðni eftir að Bretar beittu ákvæðum hryðjuverkalaga gegn þeim vegna Icesave-málsins. Cameron sagðist þá frekar vilja horfa til framtíðar en fortíðar og ítrekaði við það tækifæri vilja sinn til samstarfs við Íslendinga í orkumálum og vitnaði í hugmyndir um sæstreng milli ríkjanna tveggja.
The post Karlarnir losuðu bindin! appeared first on Fréttatíminn.