Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Bláu augun þín

$
0
0

Bláu augun þín, blika djúp og skær… Þessi texti, við vinsælt lag Hljóma, sem Ólafur Gaukur samdi á sínum tíma er auðvitað fyrir löngu orðinn klassík og við erum búin að heyra þetta lag býsna oft. Augun eru glugginn að sálinni sagði einhver og líklega er það rétt að þau gefa manni ansi mikla innsýn í líf og líðan einstaklingsins. Við getum séð gleði og hamingju, en einnig sorg og myrkur með því einu að virða þau fyrir okkur og umgjörð þeirra. Hver þekkir það ekki að sjá glampann í augum einhvers og skynja strax tengingu við þann einstakling. Það er ekki að ósekju að talað er um að ná augnsambandi sem er sterkara en flest önnur samskipti sem við eigum við aðra.

Margir halda að við notum augun til að sjá, en það er einungis að hluta til rétt. Þau virka eiginlega eins og myndavél sem tekur við ljósi í gegnum linsuna og brýtur það á ákveðinn máta. Ljósið þarf svo að berast að sjónhimnunni þar sem það umbreytist í rafboð, þau berast síðan með sjóntaugum að svæði sem kallast sjónheilinn eða visual cortex og fyrst þar verður myndin sem við sjáum til. Þannig að myndvinnslan, ef svo mætti kalla, fer fram í heilanum og þess vegna getum við séð myndir og dreymt án þess að hafa augun opin.

Augun eru býsna flókin líffæri, viðkvæm og margvísleg vandamál geta hrjáð þau. Við sem sjáum erum svo vön því að við hugsum oft ekki nægjanlega vel um þau og finnst það alveg sjálfsagt að geta horft á bíómynd, lesið bók eða einfaldlega horft út í náttúruna. Það er langt frá því að vera það og eru margir sem þurfa gleraugu eða viðlíka leiðréttandi tól til að geta sinnt daglegum störfum. Hér einu sinni var algengt að fá sýkingar í augun og gátu þær leitt til blindu. Í dag er algengara að fá einfaldari veirusýkingar sem valda óþægindum en ganga yfirleitt niður án meðferðar og eftirkasta.

22875 Teitur læknir
Teitur Guðmundsson, læknir.

Eftir því sem við eldumst breytast augun og þá geta myndast ský á augasteinum, glákan getur stungið sér niður með auknum augnþrýstingi og svo geta margir lífsstíls- og bólgusjúkdómar haft veruleg áhrif. Þar má nefna sem dæmi sykursýki, sjúkdóm með eyðileggjandi áhrif á sjónina ef blóðsykurstjórnun er ábótavant. Ef við horfum á sjón sem mengi augna, sjóntauga og heila þá er augljóst að blæðingar, blóðtappar og æxli í heila geta einnig leitt til verulegra sjóntruflana eða jafnvel blindu þó ekkert ami að augunum sjálfum.

Þar sem augun eru eitt mikilvægasta og verðmætasta skynfæri okkar er sárgrætilegt að sjá til einstaklinga án hlífðargleraugna með slípirokkinn, logsuðutækið, flugeldana og þannig mætti lengi telja. Augnslys við vinnu eða íþróttir eru algengasta orsök blindu í ungu fólki og mætti í flestum tilvikum koma í veg fyrir þau með réttri vörn, ekki gleyma því!

Teitur Guðmundsson læknir

The post Bláu augun þín appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652