Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fékk Chanel-skó í fyrirfram jólagjöf

$
0
0

Staðalbúnaður

Ég kaupi auðvitað mest af fötum í Spútnik og fer líka oft á Fatamarkaðinn. Ég klæðist yfirleitt vintage-fötum enda finn ég mikið af gersemum hér. Ef ég kaupi eitthvað dýrara þá leita ég helst í Aftur. Ég er með blæti fyrir yfirhöfnum og tek eiginlega öll herðatré í fataskápnum heima. Ég geng alltaf með sama armbandið, vintage gyllt Tiffany’s armband sem er erfðagripur.

Hugbúnaður

Það má iðulega finna mig á Bunk bar eftir vinnu, ég er meira fyrir að kíkja bara á happy hour en að fara á djammið. En ef ég fer út að djamma fer ég oftast á Prikið eða Húrra og fæ mér White Ale eða Whiskey Sour. Mér finnst afskaplega gott að fara í sund og gufu í Vesturbæjarlauginni og ég vildi að ég gæti sagt að ég hreyfði mig mikið en ég fer bara út að hlaupa á svona hálfs árs fresti. Markmiðið er alltaf að fara að byrja í jóga. Ég er eiginlega pólarandstaða við kærastann minn sem er fótboltamaður. Ég er dugleg að fylgjast með tískubloggum og öðru í tískuheiminum og um helgar fer ég oft í brunch á Cuckoo’s Nest. Ég var að flytja í nýja íbúð og er að koma mér fyrir en um helgina ætla ég að fara á Iceland Airwaves.

Vélbúnaður

Ég hef fylgt þróuninni í samfélagsmiðlum, byrjaði á Myspace, fór að nota Facebook en er nú farin að nota Instagram meira. Svo fæ ég kennslu hjá vinkonum mínum á Snapchat en ég er svolítið myndavélafeimin og er lítið að snappa sjálfa mig.

Aukabúnaður

Ég er að vinna til sex á kvöldin og kærastinn er á æfingum frameftir þannig að ég elda sjaldan. Mér finnst það gaman, en ég nenni eiginlega ekki að gera það nema gera það almennilega. Ég var til dæmis með átta manna humarveislu um helgina svo ég er eiginlega góð út árið. Þegar ég borða úti fæ ég mér oft taco á Bunk og ef ég vil gera virkilega vel við mig fer ég á Fiskmarkaðinn. Ég fór í tíu daga ferð til Barcelona í október sem var mjög næs. Það var ennþá ljómandi fínt veður og við kærastinn vorum bara að synda í sjónum og borða góðan og ódýran mat. Við fórum líka á Gus Gus tónleika. Svo fékk ég fyrirfram jólagjöf, Chanel-skó, en ég má ekki opna þá strax. Það er gaman að hafa eitthvað til að hlakka til.

The post Fékk Chanel-skó í fyrirfram jólagjöf appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652