„Við eldum hefðbundna rétti frá öllum landshlutum Ítalíu eftir okkar eigin uppskriftum,“ segir Katia. Sérstaða veitingastaðarins felst í handlöguðu pasta sem gestir geta kippt með sér heim og soðið sjálfir. „Okkur fannst þetta sniðug hugmynd og ákváðum að prófa þetta og nú getur fólk sótt handlagað, ferskt heilhveitipasta til okkar,“ segir Katia.
Veitingastaðurinn er sannkallaður fjölskyldustaður en Massimo og Katia elda allan mat saman enda líkar þeim það best. Þau eru nýkomin heim úr tveggja vikna fríi á Ítalíu sem þau segja hafi verið kærkomið. „Börnin okkar þrjú söknuðu Íslands samt mikið og voru glöð að komast aftur í skólann,“ segir Katia. Á veitingastaðnum er einnig að finna ýmsan innfluttan sælkeravarning, svo sem sætt kex, ólífur og olíur. Eftir Ítalíuferðina bættu hjónin einnig við girnilegum ostum, svo sem parmeggiano og gorgonzola.
Massimo og Katia er fjölskylduvænn staður og það á líka við um verðið. Dagana 6.-20. nóvember verður 2 fyrir 1 tilboð á gómsætu lasagne á 1450 krónur.
Unnið í samstarfi við Massimo og Katia
The post Fjölskylduvænn veitingastaður í Laugardalnum appeared first on Fréttatíminn.