Á skömmum tíma hefur ferðaþjónusta orðið stærsti atvinnuvegur Íslendinga, skákar bæði sjávarútvegi og stóriðju þegar litið er til gjaldeyristekna. Reiknað er með að erlendir ferðamenn sem hingað koma verði um 1. 250 þúsund í ár en þeir voru tæplega milljón í fyrra. Á meðfylgjandi grafi má greina sprenginguna sem gosið í Eyjafjallajökli, árið 2010, hafði á ferðaþjónustuna.

39% aukning
Í september fóru 123 þús erlendir ferðamenn frá landinu, rúmlega 39% fleiri en í september í fyrra.
Um 75% ferðamanna í október síðastliðnum voru af tíu þjóðernum.
Bretar 24,4%
Bandaríkjamenn 16,3%
Norðmenn 6,3%
Þjóðverjar 5,8%
Danir 5,0%
Gjaldeyristekjur 2014:
Ferðaþjónustan 303 milljarðar króna.
Sjávarútvegur 241 milljarður króna.
Stóriðja 233 milljarðar króna.
The post Sprenging í ferðaþjónustu appeared first on Fréttatíminn.