Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Þetta vín teiknar sig ekki sjálft

$
0
0

Bókin Vín – Umhverfis jörðina á 110 flöskum kom út á dögunum. Höfundur hennar er Steingrímur Sigurgeirsson, en hann er margreyndur höfundur bóka og greina um vín og vínmenningu. Bókin er í sama stíl og anda bókin Bjór, sem Crymogea sendi frá sér í fyrra og naut mikilla vinsælda.

23871 - Vín - Kápa

Ein meginprýði þessara bóka er að sérhverri tegund af veigum er lýst með teikningu og þetta vakti strax mikla lukku þegar Bjórbókin kom út. Það var Rán Flygenring sem teiknaði allar myndir í Bjórinn og aftur er hún á ferð í Vínbókinni. Nú fær hún með sér í lið tvo snillinga úr landsliði íslenskra teiknara, þær Lóu Hjálmtýsdóttur og myndlistarkonuna Siggu Björgu. Hver teiknari er með sinn stíl en til að tryggja að samræmi sé í bókinni var lagt upp með ákveðið svipmót sem allir þrír teiknararnir fylgdu.

23871 - rán Kanonkop

Klæjar í tunguna að smakka smjörað Chardonnay

Rán Flygenring hefur á undanförnum árum skapað sér nafn fyrir húmorískan stíl og mikinn dugnað í teikningum fyrir bækur og fyrirtæki, en líka sem Hirðteiknari Reykjavíkur og Hirðteiknari Íslands. Rán er sjálf mikið fyrir vín og lifði sig inn í hvernig túlka mætti karakter og einkenni ólíkra víntegunda. Í túlkun hennar á suðurafríska víninu Kanonkop Pinotage breytir hún til að mynda heimsálfunni Afríku í þrúguklasa, en neðst er sjálft vínið í Suður-Afríku. Einkenni pinotage þrúgunnar eru að hún var í raun búin til í tilraunastofu af suðurafrískum vínfræðingi á fyrri hluta 20. aldar. Hún er því algerlega afrísk, er einkennisþrúga suðurafrískra vína og gefur þeim sinn sérstæða karakter.

Hvert er þitt uppáhaldsvín?
„Uppáhaldsvínin mín eru ítölsk rauðvín, ég drekk þau öll og aldrei neitt annað (nema í þau fáu skipti sem í harðbakkann slær). Prinsippmál, einstrengingsleg vanafesta eða bara smekkur, líklega er ástæðan blanda af þessu öllu. Ég kýs rauðvín á sömu nótum og espressó; ekki súran og nýbylgjulegan heldur djúpan, þungan gamaldags miðjarðarhafsvelling. Gjarnan Barolo, Barbaresco, Amarone en ég er líka alveg kát með eitthvað kasjúal chianti-húsvín. Í uppáhaldi eru vínin frá Banfi kastalanum; Cum Laude, Brunello di Montalcino og La Lus meðal annarra. Já og svo er ég á sumardögum forfallinn prosecco-aðdáandi.“

Ef þú mættir velja þér hvaða vín sem er til að smakka – hvað yrði fyrir valinu?
„Augljóslega langar mig hrikalega að smakka sjálfan Château Pétrus á bls. 163 í Vínbókinni. Það er reyndar franskt, svo ég svík smá lit þar. Svo verð ég að viðurkenna að mig langar að smakka þetta viðbjóðslega smjöraða og karamellaða kaliforníska Chardonnay sem gerði næstum út af við chardonnay-bransann þarna í Napadal – lýsingin í bókinni er svo grafísk að mann klæjar alveg í tunguna.“

23871 - lóa Mateus

Gamli góði Mateusinn

Lóu Hjálmtýsdóttur þarf ekki að kynna fyrir lesendum Fréttatímans. Hún hefur glatt landann árum saman með meinfyndum skopteikningum og bókum svo sem Lóabóratóríum en auðvitað er hún líka meðlimur hljómsveitarinnar FM Belfast. Lóa skapar litlar sögur í kringum öll vínin sem leiða þann sem skoðar teikningarnar inn í smáatriði í sögu vínanna og geta verið mjög fyndnar. Túlkun hennar á portúgalska rósavíninu Mateus er í þeim anda. Mateus var um tíma eitt vinsælasta vín heims. Allir drukku rósavín úr belgmiklum flöskunum, jafnt alþýðufólk sem konungbornir. Þetta er eitt af einkennisvínum síðhippatímans og flöskurnar vinsælar sem kertastjakar.
Lóa drekkur ekki og sleppur því við að svara spurningum um eftirlætis vín sín.

23871 - Biondi-Santi Brunello di Montalcino-nyttskann - sigga

Horfi alltof mikið á verðmiðann í ríkinu

Sigga Björg er í fremstu röð myndlistarmanna samtímans. Segja má að hún hafi hætt sér út á nýjar slóðir með því að teikna vínkaraktera, því alla jafna skapar hún sinn eigin heim, sem hefur skýr höfundareinkenni og mátti til að mynda sjá nýverið á sýningu hennar í Listasafni ASÍ. Hún notar sinn eigin stíl úr myndlistarverkum sínum en býr til myndir sem draga fram einkenni vínanna, býr til einskonar persónur fyrir hvert vín. Hún teiknar því eðalvínið Brunello di Montalcino frá framleiðandanum Biondi-Santi með því að sýna eðli vínsins sem búið er til úr brunello þrúgunni einni og eingöngu og eru því alltaf hrein afurð frá þessum unaðsbletti í Toskana á Ítalíu en framleiðandinn, Franco, stendur og reykir pípu.

Hvert er þitt uppáhaldsvín?
„Ég er ein af þessum sorglegu verum sem horfir alltof mikið á verðmiðann í ríkinu … gekk svo langt að kaupa einu sinni „Don Opas“ á 990 krónur og reyndi að sannfæra heilt matarboð um að þetta væri fínasta vín, ég sé það núna að þetta var mjög vandræðalegt. En annars kaupi ég oftast Montechillo því mér finnst miðinn svo flottur, rautt og gyllt er svo grand og klassískt, eins og hógvær Drakúla greifi í sparifötum og vínið er bara fínt.“

Ef þú mættir velja þér hvaða vín sem er til að smakka – hvað yrði fyrir valinu?
„Ef verð væri ekki fyrirstaða þá myndi ég fara í ríkið og velja öll vínin með flottustu miðunum. Miðinn skiptir öllu máli þegar kemur að því að kaupa vín. Smart og artí miðar virka ekki á mig, frekar stílhreinir, klassískir og grand miðar. Montechillo með svarta miðanum er eitthvað sem ég á eftir að prófa.“

The post Þetta vín teiknar sig ekki sjálft appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652