Nú fer sá tími að skella á þegar við þurfum oftar að vera í okkar fínasta pússi, eða að minnsta kosti í fínna lagi. Jólahlaðborð, jólaboð, jólapartí, eða hvers konar boð með forskeytinu jóla- eru fram undan og því er gott að eiga eins og einn eða tvo fallega kjóla í fataskápnum. Tískan er hins vegar orðin svo fjölbreytt að nú getum við hætt að leita eingöngu af jólakjól. Jólasamfestingur eða jólabuxur flokkast alveg sem fullgildur klæðnaður í desember, svo lengi sem smá glimmeri, blúndu eða öðru fíniríi er bætt við. Hér má líta á brot af því sem verslanir landsins bjóða upp á þessa dagana af klæðnaði í fínni kantinum.
The post Í okkar fínasta pússi appeared first on Fréttatíminn.