Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tweed Dallas

$
0
0

Downton Abbey er byrjað aftur, og það líklega í síðasta sinn. Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af þessum þáttum. Ekki bara það að þetta minni mig á Dallas, heldur hef ég alltaf hrifist af þessu millistríðsástandi, sérstaklega á Bretlandi. Það er einhver dásamleg kurteisi og um leið ákveðin örvænting sem fylgir þessum tíma. Aðalsstéttin er að uppgötva það að ekki er hægt að halda áfram með sama hætti og undanfarin hundrað ár, og hún á í miklum erfiðleikum með að viðurkenna það. Hugsar með hryllingi til þeirrar staðreyndar að það þurfi að fækka þjónustufólki. Ekki með hag þeirra fyrir brjósti, heldur með þann sturlaða ótta við tilhugsunina um að klæða sig sjálf. Á þessum tíma er líka flottasta tíska síðustu aldar. Sérstaklega hjá karlmönnum. Það er draumur minn að geta gengið út á morgnana í kvartbuxum og hnésokkum án þess að vera álitinn einhver kverúlant. Söguþráðurinn er svo auðvitað aðalmálið. Innri orrustur fjölskyldunnar í bland við saklausa ást lágstéttarinnar. Þarna er Sue Ellen síns tíma, sem og Lucy og Cliff. Bara í öðrum fötum. Fullkomið.

The post Tweed Dallas appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652