Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Góð lög þola ýmislegt

$
0
0

Hljómsveitin Sniglabandið fagnar 30 ára afmæli á þessu ári og í tilefni af því gaf sveitin út sína þrettándu breiðskífu á dögunum. Íslenskar sálarrannsóknir nefnist gripurinn þar sem sveitin tók tíu vel þekkt íslensk dægurlög og kafaði ofan í þau með sínum hætti. Pálmi Sigurhjartarson, píanóleikari sveitarinnar, segir mörg af lögunum hafi kallað á það að láta krukka aðeins í sig og líkir hann þessari vinnu saman við leikhúsvinnu. Þar sem hópur býr til sína leikgerð af þekktum verkum. Meðal gesta sveitarinnar á plötunni eru dúettinn Þú og ég og Stefán Jónsson, sem betur er þekktur sem Stebbi í Lúdó.

„Það er eitt að gera plötu með ábreiðum en til þess að þetta verði eitthvað þá þurftum við þetta ferli. Bara eins og leiksýning sem þarf nokkra mánuði í undirbúning. Sum lögin tóku algerum stakkaskiptum og sum þarna eru í rauninni bara alveg ný lög, eins og okkar útgáfa af Ég er kominn heim.“

„Sagan á bak við þessa plötu er sú að á síðasta ári fórum við að pæla í því hvað við ættum að gera í tilefni af þessu 30 ára afmæli,“ segir Pálmi Sigurhjartarson píanóleikari. „Við höfðum oft í gegnum tíðina leikið okkur með lög annarra og það kom upp þessi hugmynd að finna sálina í nokkrum íslenskum perlum. Við vissum svo sem ekkert hvaða lög við ætluðum að skoða en oft hefur maður tekið lög og strípað þau. Góð lög þola ýmislegt,“ segir hann.
„Við byrjuðum í fyrstu vikunni í janúar að hittast og hittumst svo bara í hverri viku á mánudögum. Þreifuðum á einhverju og tókum upp og komum aftur að þessu. Útsetningar fóru um víðan völl, eins og gengur, en það sem við erum hvað ánægðastir með, er hvað við gáfum þessu langan tíma,“ segir hann. „Það er eitt að gera plötu með ábreiðum en til þess að þetta verði eitthvað þá þurftum við þetta ferli. Bara eins og leiksýning sem þarf nokkra mánuði í undirbúning. Sum lögin tóku algerum stakkaskiptum og sum þarna eru í rauninni bara alveg ný lög, eins og okkar útgáfa af Ég er kominn heim,“ segir Pálmi. „Það var búið að gera allt sem hægt var við það lag áður. Einnig á það við um Betri bíla sem allir þekkja með Rúnari Júlíussyni,“ segir hann. „Þar vorum við komnir svo langt frá laginu að það var komið nýtt, sem dúettinn Þú og ég syngur með okkur. Það var alveg magnað hvað sándið þeirra hefur ekkert breyst,“ segir hann.
„Allir höfundarnir sem eiga lag á plötunni gáfu okkur algert frelsi með þessi lög sín og eru útsetningarnar jafn mörg og lögin.“ Á plötunni má finna tvö lög eftir Megas. Perlu Björgvins Halldórssonar, Ég er að tala um þig og Stúlkan sem Todmobile gerði frægt á tíunda áratugnum. „Það hafði alltaf klingt í hausnum á mér að heyra hvernig Stebbi í Lúdó mundi syngja Stúlkuna,“ segir Pálmi. „Það var mjög gaman að vinna með Stebba og fá hann með okkur í þetta. Honum þótti textinn svolítið skrýtinn en tengdi strax við lagið, sem við settum í smá Fats Domino útgáfu,“ segir hann. „Svo erum við með Stefaníu Svavarsdóttur og Stefán Jakobsson úr Dimmu á plötunni líka. Á tímabili héldum við að allir gestirnir yrðu að heita nöfnum sem byrjuðu á St, en það er kannski stærra verkefni og gengur ekkert endilega upp,“ segir Pálmi.
„Þetta er þrettánda plata sveitarinnar á þrjátíu árum og það er ekkert loku fyrir það skotið að við gerum aðra svona plötu. Það er nóg til af efni sem gaman er að vinna með. Það er ekkert minni áskorun að gera svona plötu en að semja allt sjálfur, þó það sé gaman líka. Þetta er bara önnur áskorun,“ segir Pálmi Sigurhjartarson, píanóleikari í Sniglabandinu.

The post Góð lög þola ýmislegt appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652