Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Norskir bruggarar heimsækja Ísland

$
0
0

Norsku bruggararnir Gahr Smith-Gahrsen og Jens Eikeset koma frá Bergen en kynntust þeim Árna Long og Valgeiri Valgeirssyni í Borg brugghúsi á mikilli bjórhátíð í London í október. Bæði 7 Fjell og Borg kynntu þar bjóra sína og tókust góð kynni með bruggurunum. Afráðið var að þeir norsku kæmu hingað til lands í heimsókn til að brugga með Valgeiri og Árna. Stefnt er að því að bjórinn sem þeir brugga verði seldur bæði hér á landi og í Noregi.

7 Fjell menn koma alls ekki tómhentir hingað því þeir hafa með sér átta bjóra sem hægt verður að kynna sér á Skúla á laugardag. Þessir bjórar hafa ekki fengist áður á Íslandi. Veislan hefst klukkan 17 og er sérstaklega hægt að mæla með Morgenstemning en sá var kynntur á hátíðinni í London og bragðaðist afar vel.

Þessir bjórar verða á krana:

Kniksen India Red Ale 6.8%
Fløien IPA 6.9%
Svartediket Black IPA 7%
Ulriken DIPA 8.5%
Morgenstemning Coffee Stout 6.5%
Vinter American Strong Ale 7.3%
7 Sorter Christmasale 6.5% English Strong Ale X-mas
St. Nikulaus Christmas Ale. 4.7% X-mas Brown ale

 

The post Norskir bruggarar heimsækja Ísland appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652