Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sigga og Siggi á KEX

$
0
0

Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 21 og er frítt inn.

Sigríði og Sigurð þekkja langflestir landsmenn í gegnum söngva þeirra sem þau hafa framið með hljómsveitum sínum, Sigríður í Hjaltalín og Sigurður í Hjálmum. Einnig hafa þau sent frá sér afbragðs sólóskífur.

Það eru einmitt tvær hljómplötur þeirra sem verða í forgrunni á tónleikunum á Sæmundi í sparifötunum – jólaplöturnar Nú stendur mikið til með Sigurði og Jólakveðja með Sigríði. Auk laga af þessum plötum verða á dagskránni hátíðarlög úr öllum áttum sem Sigurður og Sigríður munu syngja bæði saman og í sitt hvoru lagi.

The post Sigga og Siggi á KEX appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652