Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sannir rokkarar þagna aldrei

$
0
0

„Ég er að vísa í eitthvað sem er angra og trufla okkur í lífinu. Við sitjum samt áfram en alltaf einhverjar áhyggjur og söknuður í hausnum. Ekki það að mér líði eitthvað illa, því ég er mjög hamingjusamur maður,“

„Ég er búinn að vera nokkuð lengi í þessu,“ segir Rúnar Þórisson tónlistarmaður. „Auðvitað fyrst með hljómsveitinni Grafík en svo fór ég í klassíkina og hætti í rokkinu í nokkuð mörg ár. Síðustu tíu árin hefur það hins vegar ekki látið mig í friði,“ segir hann. „Taugin er voðalega sterk. Þetta er öðruvísi en í klassíkinni þegar maður er að túlka verk annarra. Það er öðruvísi sköpun að vera að semja þetta sjálfur, bæði texta og lög,“ segir hann. „Það lætur mér mjög vel. Sköpunin er alltaf undirliggjandi hjá mér, en ég vinn efnið samt mikið í skorpum. Ég er ekki með lagabanka eða lög á lager. Ég sem í rauninni ekkert umfram það sem kemur út frá mér,“ segir Rúnar. „Þetta virkar hreinlega þannig að ég ákveð að gera plötu og sem þá mjög markvisst lög og texta fyrir þá plötu. Þannig vinn ég þetta í grófum dráttum,“ segir hann.
„Á þessari nýju plötu, Ólundardýr, er undirliggjandi í öllum textum hjá mér umhyggja og vissar áhyggjur um hvað verða vill. Þetta tengist ákveðinni hugsun og tilfinningum sem kvikna með árunum, ekki síst þegar maður eignast börn og barnabörn. Hvað verða vill hjá þeim sem og öllum öðrum sem erfa þessa jörð,“ segir Rúnar. „Þetta kemur sterkt upp í huga mér þegar kemur að textum og öðru. Ég er að vísa í eitthvað sem er angra og trufla okkur. Við siglum áfram í lífinu en alltaf með undirliggjandi áhyggjur, trega og söknuð í hausnum. Ekki það að mér líði eitthvað illa, því ég er mjög hamingjusamur maður,“ segir hann.
Rúnar er umkringdur góðu tónlistarfólki í fjölskyldunni. Dætur hans báðar hafa verið áberandi í tónlistinni. Margrét, dóttir hans, er söngkona í hljómsveitinni Himbrimi og Lára Rúnarsdóttir er þekkt stærð í íslensku tónlistarlífi. Tengdasynir Rúnars eru svo báðir tónlistarmenn svo það er auðvelt að fá alla til þess að spila inn á plötu með tengdaföðurnum. „Ég nýt auðvitað góðs af þessu,“ segir Rúnar. „Ég hugsa oft um að segja við þau öll, að þau þurfi ekkert að vera með í þessu. Þau megi alveg segja nei,“ segir hann. „Ég veit samt ekki hvort þau mundu gera það. Þetta er auðvitað sérstakt en einnig mjög skemmtilegt.“
„Ég verð með útgáfutónleika 15. janúar á Rosenberg og á Akureyri í febrúar. Svo hef ég haft mjög gaman af því að koma fram á hátíðum eins og Aldrei fór ég suður, Secret Solstice, Myrkum músíkdögum, Iceland Airwaves og Listahátíð,“ segir hann. „Við spiluðum síðast á Airwaves í nóvember og þar fengum við alveg glimrandi móttökur svo manni var nánast brugðið við lófaklapp og hróp á milli laga. Þetta hættir aldrei að vera skemmtilegt. Maður er ekki fyrr búinn með eitt verkefni þegar maður er byrjaður að hugsa það næsta. Svo er ég að kenna á gítar og var að gefa út námsefni í gítarkennslu og það er ákveðin sköpun í því líka. Maður heldur áfram á meðan það er gaman. Sannir rokkarar þagna aldrei,“ segir Rúnar Þórisson gítarleikari.
Platan Ólundardýr fæst í öllum helstu hljómplötuverslunum.

The post Sannir rokkarar þagna aldrei appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652