Fíkniefnalögreglumaðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni grunaður um misferli í starfi, heitir Jens Gunnarsson.
Hann er á fimmtugsaldri og hefur starfað í fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í langan tíma.
Jens er reyndur lögreglumaður sem lýst er af samstarfsfólki sem yfirveguðum og faglegum. Samstarfsfólk hans í fíkniefnadeildinni hefur þegið áfallahjálp eftir fregnirnar.
Hæstiréttur féllst á að úrskurða manninn í tíu daga gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Ríkissaksóknari er enn með málið til rannsóknar.
Ekki fæst uppgefið frá lögreglu í hverju meint brot hans felast en talað er um óeðlileg samskipti við brotamenn.
Samkvæmt frétt RÚV hefur annar maður verið handtekinn vegna rannsóknar ríkissaksóknara á málinu. Sá á að hafa hlotið dóm fyrir fíkniefnalagabrot.
The post Lögreglumaðurinn sagður faglegur appeared first on Fréttatíminn.