Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Neitar að hafa brotið lög en játar óhefðbundnar starfsaðferðir

$
0
0

Lögreglumaðurinn játaði á sig óhefðbundnar starfsaðferðir sem fólu í sér samskipti við brotamenn sem ganga gegn reglum lögreglunnar en neitaði að hafa gerst brotlegur við lög.

Jens Gunnarssyni, þrautreyndum fíkniefnalögreglumanni sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald 29. desember, var sleppt í gær, fimmtudag. Hann neitar staðfastlega sök en honum er borið á brýn að hafa þegið greiðslur frá þekktum brotamannni fyrir upplýsingar um mál í rannsókn lögreglunnar.

Sá hefur hlotið dóma fyrir fíkniefnamisferli en var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. janúar.

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurðinn í samtali við Fréttatímann í gær. Hann sagði að rannsóknin héldi nú áfram en ekki hefði verið talið nauðsynlegt að fara fram á frekara gæsluvarðhald yfir lögreglumanninum.

Tengist ekki tálbeitumáli

Handtakan hefur verið sögð tengjast tálbeituaðgerð lögreglunnar í máli hollensku konunnar Mirjam Van Twuyer í apríl í fyrra en hún situr nú af sér ellefu ára fangelsisdóm fyrir fíkniefnasmygl. Heimildarmenn Fréttatímans segja að svo sé ekki, allavega á þessu stigi málsins. Eina tengingin sé sú að Jens kom að rannsókninni. Í aðgerðinni vakti athygli og var gagnrýnt að maðurinn sem tók við fíkniefnunum var handtekinn áður en hann gat skilað þeim til höfuðpaursins í málinu.

Uppnám er innan lögreglunnar vegna málsins en áratugir eru síðan lögreglumaður hefur verið settur í gæsluvarðhald vegna brota í starfi. „Þetta er afar sorglegt, segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarlögreglustjóri. „Þetta sýnir samt svart á hvítu að kerfið virkar og þegar svona mál koma upp, þá hlífum við engum.“

Franklín og byssuleyfið

Samkvæmt heimildum Fréttatímans hefur lögreglumaðurinn játað á sig óhefðbundnar starfsaðferðir sem fólu í sér samskipti við brotamenn sem gengur gegn reglum lögreglunnar en hann hefur neitað að hafa gerst brotlegur við lög.

Árið 1996 flettu fjölmiðlar ofan af umdeildum samskiptum þáverandi yfirmanns fíkniefnalögreglunnar við Franklín Steinar sem var þekktur í undirheimunum. Yfirmaður fíkniefnalögreglunnar hafði meðal annars skrifað upp á byssuleyfi fyrir Franklín. Þótt hörð hríð væri gerð að lögreglunni í málinu og margvíslegar ávirðingar kæmu fram á starfshætti lögreglunnar var enginn handtekinn eða dæmdur. „Ég hugsaði til þess þegar ég heyrði af þessu fyrst,“ segir Snorri Baldursson, formaður Landssambands lögreglumanna.
Snorri segir að eðli málsins samkvæmt sé mikil ólga í lögregluliðinu vegna málsins, enda hafi enginn haft neina ástæðu til að gruna lögreglumanninn um neitt misjafnt. Þetta hafi því komið sem þruma úr heiðskíru lofti.

24511 urklippur224511 urklippur

 

The post Neitar að hafa brotið lög en játar óhefðbundnar starfsaðferðir appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652