Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Nýtt listamannasambýli á Granda

$
0
0

Áform eru uppi um að Nýló, galleríið Kling & Bang og listamaðurinn Ólafur Elíasson fari undir sama þak. 

Til skoðunar er að flytja í Marshall-húsið á Granda í Reykjavík en það er í eigu nágrannanna, fiskvinnslufyrirtækisins HB Granda. Þreifingar um að mynda menningarhús með fjölþættri myndlistarstarfsemi hafa staðið yfir í tvö ár. Hugmyndin er að skapa framúrstefnulegan og óháðan vettvang fyrir listamenn.

Marshall-húsið dregur nafn sitt af Marshall-aðstoðinni sem Íslendingar þáðu frá Bandaríkjunum á eftirstríðsárunum. Það var byggt sem fiskimjölsverksmiðja og á langa sögu. Ný starfsemi bæri áfram nafn hússins. Húsið er einstaklega glæsilegt með fallegum gluggum á alla kanta og hefur verið tekið í gegn að undanförnu.

Á fyrstu hæð hússins er fyrirhugað að opna veitingastað. Kling og Bang og Nýló fengju hvort sína hæðina og efst í húsinu héldi Ólafur Elíasson til.

Arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason, arkitektar hjá Kurt og Pí, hafa lagt drög að útfærslu hugmyndanna. Að mati forsvarsmanna Nýló er mikil þörf á aukinni myndlistartengdri starfsemi í miðbænum en Nýló missti húsnæði sitt við Skúlagötu fyrir tveimur árum og flutti í Breiðholtið. Kling og Bang hélt síðast til á Hverfisgötu en missti húsnæðið í sumar og hefur leitað að nýjum stað síðan.
Ólafur Elíasson rekur stúdíó í Berlín með tæplega hundrað starfsmönnum en hann er meðal listamanna í umboðsgalleríinu i8 í Reykjavík. Hugmyndin er að Ólafur hafi vinnustofu og opið sýningarrými í Marshall-húsinu.

Að mati hlutaðeigandi eru áformin til góðs fyrir alla með margvíslegum samlegðaráhrifum. Telja þau starfsemina auka aðdráttarafl Grandasvæðisins en auk þess sé brýn þörf á að hlúa vel að grasrótarstarfsemi listamanna og sjálfstæðum listamannareknum rýmum.

The post Nýtt listamannasambýli á Granda appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652