Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Dýrasti ellilífeyrisþeginn

$
0
0

Fær eftirlaun forseta, ráðherra og alþingismanns.

Ólafur Ragnar Grímsson mun halda áttatíu prósentum af launum sínum sem forseti Íslands til dauðadags eftir svo langa setu í embætti og fær rúmar 1,8 milljónir króna í eftirlaun. Þá fær hann því til viðbótar lífeyrisgreiðslur frá LSR, sem fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Hann sat á þingi í tíu ár, þar af var hann fjármálaráðherra í þrjú ár. Samkvæmt því verða eftirlaun hans 439.000 krónur.

Hann mun samkvæmt því þiggja eftirlaun frá ríkinu og Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins upp á tæpar 2.3 milljónir á mánuði.

Eftirlaunalögunum var reyndar breytt árið 2009 og lífeyrisréttindi æðstu embættismanna ríkisins, svo sem þingmanna og ráðherra, urðu þá með sama sniði og hjá öðrum ríkisstarfsmönnum. Ekki var þó hægt að taka réttindi af mönnum sem höfðu áunnið sér þau samkvæmt gömlu lögunum, líkt og Ólafur Ragnar.

The post Dýrasti ellilífeyrisþeginn appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652