Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Verðlistinn á förum

$
0
0

„Við erum á förum, annaðhvort hættum við eða flytjum,“ segir verslunarkonan Erla Wigelund sem hefur selt kvenmannsföt í Laugarnesinu í meira en hálfa öld. „Við erum með rosalega fína útsölu, mjög góðar vörur á 30-50% afslætti. Við erum með mjög fínar úlpur en erum náttúrulega þekktar fyrir dönsku buxurnar, þær hafa alltaf mokast út hjá okkur. Okkar vörur koma mest frá Danmörku og Þýskalandi en við höfum aldrei selt neitt breskt drasl,“ segir Erla sem á eftir að sakna sinna mörgu fastakúnna. „Við höfum alltaf verið með mikið af fastakúnnum, sérstaklega utan af landi því við erum með svo góða þjónustu. Við höfum alltaf sent föt út á land sem fólk getur mátað heima hjá sér og bara borgað svo í heimabankanum.“

The post Verðlistinn á förum appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652