Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Átök innan lögreglunnar um svartar og hvítar skyrtur

$
0
0

Yfirmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fengu árið 2012 sérstaka undanþágu til að aðgreina sig frá almennum lögreglumönnum og klæðast hvítum skyrtum. 

Yfirmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fengu undanþágu frá reglugerðum um einkennisbúninga til að klæðast öðruvísi skyrtum en almennir lögreglumenn. Í reglugerð um einkennisbúninga lögreglunnar var árið 2012 skotið inn sérstakri málsgrein. Málsgreinin tilgreinir að „yfirmönnum lögreglu væri heimilt að nota hvíta einkennisskyrtu með almennum lögreglufatnaði.“ Aðrir lögreglumenn nota svartar skyrtur.

Árið 2007 var nýr einkennisfatnaður lögreglumanna tekinn í notkun en ríkislögreglustjóri hafði unnið að innleiðingunni í tvö ár. Fyrir þann tíma voru bláar skyrtur með almennum einkennisbúningum lögreglunnar. Þegar búningunum var breytt fengu allir lögreglumenn svartar skyrtur. Aðeins eru hvítar skyrtur með hátíðarbúningi lögreglunnar sem afar sjaldan er notaður.

Sú sérkennilega undantekning virðist hafa verið gerð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að yfirmenn klæddust hvítum skyrtum. Þótti það aðgreina þá með afar skýrum hætti og var því öllum ljóst að þeir gegndu ábyrgðarstöðu á lögreglustöðinni. Óvitað er hver átti frumkvæðið að þessu.

Innanríkisráðherra þess tíma, Ögmundur Jónasson, skrifaði undir breytingu reglugerðarinnar og samþykkti undanþáguna. Meðal lögreglumanna sem Fréttatíminn ræddi við, þótti þessi hefð yfirmannanna kjánaleg.

Á fyrsta degi Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur í starfi sem lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, 1. september 2014, birtist hún í svartri skyrtu, eins og flestir lögreglumenn notuðu. Á móti henni tóku hvítklæddir yfirmenn. Svo virðist sem yfirmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi farið að klæðast svörtum skyrtum fljótlega eftir lögreglustjóraskipti.

The post Átök innan lögreglunnar um svartar og hvítar skyrtur appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652