Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tíðni

$
0
0

Undirritaður er þjónn almannaþjóns og getur ekki tjáð sig um hvað sem er. Getur ekki skrifað um pólitík. En hér eru 400 orð um eitthvað annað en pólitík.
„Sæðisfruma gærdagsins er lík morgundagsins.“ Þessi orð eru höfð eftir Marcusi Aurelíusi, fyrrum keisara Rómaveldis og heimspekingi. Þau minna á hversu ævi okkar mannanna er stutt í heildarsamhengi þróunarsögu tegundarinnar. Það að vera einstaklingur í samfélagi manna er verkefnið og tíminn til þess að ná „árangri“ í því verkefni er takmarkaður.
Maðurinn er gleyminn. Hann vill og hann langar. Honum finnst og hann heldur. En í raun getur hann aldrei átt neitt né verið viss um neitt nema e.t.v. um það að sá rafboðefnaflutningur og tíðni sem heldur hjarta hans og höfði kviku í sál hans og vitund mun vaxa, dofna og að lokum enda.
Við höfum í gegnum aldirnar átt með okkur samfélög um tilvistina. Smíðað ramma – siðferðisramma, lagaramma – strúktúrerað samfélögin og skilyrt hugsun og hegðun í gegnum tól og tæki eins og trúarbrögð, vísindi og stjórnspeki – og komist vel af. Eða hvað? Líf okkar hefur lengst í árum og samfélög okkar tekið miklum framförum. En í hverju eru „framfarirnar“ í raun fólgnar? Við eigum nú rafmagnaða og jarðefnaknúna tilveru umvafða steypu, járni, gleri og plasti, jú og holdi – því samskipti eiga sér víst enn stað í gegnum hold. Við eigum möguleika á að komast á milli staða og samskiptaleiðum sem fyrir nokkrum öldum hefðu þótt óhugsandi.
Tilveran er „spanaðri“ en nokkru sinni fyrr – tíðni okkar lituð af háspenntu rafmagni, skjálífi, tjáningu, skoðunum, nokkuð stöðugu viðbragði við áreiti og að því mér virðist almennum skorti á tengingu við innsæi. En þrátt fyrir „framfarir“ okkar þá leitum við nú í enn ríkari mæli að upphafstíðninni – tíðni náttúrunnar. Tíðni sem við erum partur af þó oft viljum við hefja okkur yfir hana.
Við erum spendýr í grímubúningum. Grímudansleikurinn innrammaður af ofangreindum manngerðu römmunum en gefið líf með mennsku okkar og menningu. Ég vann eitt sinn með manni í vegavinnu sem sagði mér einn sumardaginn er ég var unglingur undir sólinni, að það væru í raun einungis fjórir þættir sem skiptu máli í lífinu. Maðurinn var glaðvær í tíðni sinni er hann sagði mér, þar sem hann stóð á hlýrabolnum í kaffiskúrnum, að það sem skipti máli í lífinu væri (í þessari röð) að: drekka, reykja, ríða og hanga. Er hann lauk síðasta orðinu stökk hann upp og greip með höndunum um einn þverbitann í lofti skúrsins og „hékk“. Af hverju að vera að flækja þessa stuttu ferð frá sæðisfrumu að líki um of?

Héðinn Unnsteinsson
Höfundur er sérfræðingur í stefnumótun og ráðgjafi í geðheilbrigðismálum.

The post Tíðni appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652