Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Við erum rugludallar sem færumst of mikið í fang

$
0
0

Þeir hafa tekið á móti þrjátíu til fjörutíu sjálfboðaliðum frá sextán þjóðlöndum.

„Það er miðað við að sjálfboðaliðar vinni þrjátíu stundir á viku fyrir fæði og húsnæði en við erum vinnualkóhólistar og oft eru þrjátíu vinnustundir liðnar eftir fyrstu tvo dagana,“ segir Bergsveinn Reynisson, kræklingabóndi í Króksfjarðarnesi en hann og bróðir hans ákváðu að auglýsa eftir sjálfboðaliðum á síðunni workaway.info fyrir sextán mánuðum síðan, ásamt hundruðum annarra Íslendinga í ferðaþjónustu, landbúnaði og fleiri greinum.

Sjálfboðaliðar frá sextán löndum

„Það hefur ekki stoppað hjá okkur tölvupósturinn síðan við fórum að auglýsa eftir sjálfboðaliðum,“ segir Bergsveinn. Þeir hafa síðan fengið til sín þrjátíu til fjörutíu sjálfboðaliða frá sextán þjóðlöndum, sumir hafa komið oftar en einu sinni til að vinna hin aðskiljanlegustu störf.

Bergsveinn segir að fjölskyldan eigi tvö til þrjú hús, sem sé verið að gera upp, þá sé hún með handverksmarkað á sumrin, Arnarsetur, sauðfjárbúskap og kræklingavinnslu í gömlu sláturhúsi. „Þegar fólk pantar sér bláskel í Reykjavík, þá er hún oftast frá okkur. Við erum einfaldlega rugludallar sem færumst of mikið í fang.“

Alls er búist við að hundruð sjálfboðaliða leggi leið sína til landsins í sumar til að vinna við allskyns starfsemi sem tengist ferðaþjónustunni.

Sjálfboðaliðar á hótelum

Nokkur hótel á landsbyggðinni reiddu sig á ókeypis vinnuafl frá rúmenskum hótelskóla í fyrrasumar.

Halldór Grönvold, skrifstofustjóri hjá ASÍ, segir að Fosshótel í Reykholti hafi nær einungis verið rekið á vinnuframlagi nemenda við skólann. Auk þeirra hafi verið einn starfsmaður á hótelinu en hann hafi verið ófaglærður og því ekki heppilegasti kennarinn. Verkalýðshreyfingin hefur sent kvörtun til EES vegna málsins þar sem verkefnið hafði hlotið þróunarstyrk frá ESB en atvinnurekendur áttu einungis að leggja til fæði og húsnæði.

Meðal þeirra sem auglýsa eftir sjálfboðaliðum til starfa á síðunni workaway.info, eru sveitabýli og hrein og klár atvinnufyrirtæki. Óskað er eftir barnagæslu, aðstoð við jarðarberjarækt, aðstoð á hestaleigu og ein hjón eru að gera upp hús sem þau festu kaup á og vilja fá aðstoð. Þá vill fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins og varaþingmaður VG, fá aðstoð í bóksölu sinni á Selfossi.

Hrein og klár fyrirtæki

„Þarna eru hrein og klár ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja ráða, ekki bara einn heldur allt upp í fjóra starfsmenn upp á fæði og húsnæði,“ segir Halldór Grönvold sem segir engan vafa leika á því að þarna sé verið að brjóta lögin. Það réttlæti ekki neitt að ungir krakkar séu spenntir fyrir Íslandi og vilji ferðast til Íslands. Fyrirtæki verði að sitja við sama borð. Hann segir að starfsemi sem snúist um að selja vöru og þjónustu eigi undantekningarlaust að lúta öllum reglum kjarasamninga og skattalaga. Fyrirtækin séu ekki bara að svíkjast um að greiða starfsmönnum laun heldur séu þau líka að koma sér undan því að greiða skatta og gjöld til samfélagsins.

Gæti orðið dýrt

Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, segir sjálfboðaliðastarf verði að einskorðast við störf sem væru ekki unnin að öðrum kosti, til að mynda hjá mannúðar- og hjálparsamtökum sem séu rekin fyrir söfnunarfé. Það sé í hæsta máta óeðlilegt að sjálfboðaliðar taki þátt í atvinnulífinu og vinni við það sem annars væru launuð störf. Það skekki samkeppnisstöðu fyrirtækja og dragi niður laun í viðkomandi starfsgreinum.

Sjálfboðaliðar eru oftar en ekki ungir krakkar sem nota þetta sem ferðamáta en hafi framfærslueyri frá foreldrum sínum. Drífa bendir á að þetta geti orðið fyrirtækjum og einstaklingum dýrt spaug ef það verða slys á vinnustað. Sjálfboðaliðarnir séu ótryggðir og það liggi beint við að höfða skaðabótamál til að hafa upp í kostnað.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Gefur lítið fyrir tal um skattsvik

Bergsveinn segir að sumir sjálfboðaliðarnir komi oftar en einu sinni. Þannig hafi tveir tvítugir Frakkar verið hjá þeim í þrígang. Núna sé hjá þeim franskur kokkur sem sé afskaplega ánægður með dvölina. „Við höfum undantekningarlaust fengið til okkar gott fólk, einn fór eftir viku en hann var á einhverju einhverfurófi og gat ekki sett sig inn í lífið hérna.“

Hann segist gefa lítið fyrir umræðu um skattsvik og undirboð á vinnumarkaði. Fólk komi af fúsum og frjálsum vilja til að hjálpa til og hann noti sína eigin peninga, sem hann sé búinn að greiða skatt af, til að skjóta yfir það skjólshúsi og gefa því að borða. Þetta séu nær undantekningalaust góðir vinir heimilisfólksins í dag: „Ekki fer maður að banna vinum sínum að koma og rétta fram hjálparhönd. Þetta hefur fyrst og fremst verið alveg óskaplega gaman,“ segir Bergsveinn.

The post Við erum rugludallar sem færumst of mikið í fang appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652