Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Rúmur helmingur spítalalækna í hlutastörfum

$
0
0

Forstjóri Landspítalans segir truflandi að vera með marga lækna í hlutastörfum.

Einungis tæpur helmingur þeirra sérfræðinga sem starfa á Landspítalanum eru í fullri vinnu. Flestir sérfræðingar starfa einnig utan spítalans við einkastofur. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir að það sé truflandi að vera með fólk í hlutastörfum, þótt það geti hentað í vissum tilvikum.

Meðallaun lækna fyrir fulla vinnu á spítalanum eru fjórtán hundruð og fimmtíu þúsund á mánuði.

Stofur sérfræðilækna hafa að meðaltali 20 milljónir á ári í heildartekjur af stofurekstri, samkvæmt tölum frá Sjúkratryggingum Íslands. Inni í því er kostnaður við rekstur stofanna.

Kostnaður ríkisins af sjúkrahúsunum hefur ekki lækkað þrátt fyrir aukinn einkarekstur. Þótt sérfræðilæknar úti í bæ taki hluta af sjúkrahúsþjónustunni yfir þarf ríkið áfram að halda grunnþjónustunni við. „Það er vandamál að reka tvö kerfi sem eru fjármögnuð á mismunandi hátt,“ segir Páll. Þótt einkarekstri hafi verið gert hátt undir höfði á kostnað sjúkrahúsanna sé frekar um að kenna áratuga stefnuleysi en einstefnu í átt til einkarekstrar. „Bætt kjör lækna vekja vonir um að þetta sé að breytast,“ segir Páll.

The post Rúmur helmingur spítalalækna í hlutastörfum appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652