Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Uppeldisráð Möggu Pálu

$
0
0

Dóttir mín, átta ára, borðar lítið sem ekkert á matmálstímum en biður svo um eitthvað að borða hálftíma síðar. Hvað á ég að gera?

Kæra foreldri. Margar ástæður geta verið að baki matarhegðun dóttur þinnar og lausnir geta líka verið margvíslegar. Hér koma nokkur áhöld sem þú getur valið úr út frá þekkingu þinni á barninu þínu og þeim mun fleiri áhöld sem þú notar, þeim mun betri getur árangurinn orðið.

Mikilvægt er að barnið setjist svangt að borði. Því þarf að hafa reglu á matartímunum og enga aukabita milli mála með þeirri undantekningu að börn þurfa að borða oftar en fullorðnir eða með um þriggja tíma millibili. Skólabarn þarf að fá góða hressingu þegar það kemur heim eftir skólann um miðjan dag og kvöldverður er þá lokamáltíð dagsins. Ef kvöldverður er klukkan sjö, þarf skipulagðan aukabita um fimmleytið en matarlyst margra barna er betri fyrr á daginn, eins og um sexleytið.

Öll börn kjósa að hafa grunnefni máltíðarinnar aðskilin; kjöt og fiskmetið sér, kartöflur og pasta sér, sósurnar sér og grænmetið aðskilið fremur en saman í kássum, pottréttum og salati. Matarsmekkurinn og bragðlaukarnir eru í mikilli þróun og það ber að virða. Það virkar aldrei að pína börn til að borða allan mat en þau geta fengið sér æfingabita af því sem er í boði. Síðan geta þau einbeitt sér að því sem þeim líkar best.

Heimilið barni að leifa af diskinum en bjóðið þeim upp á valkosti og samninga ef þau hafa ekki borðað nægilega. „Viltu fjóra eða tíu bita áður en þú ferð frá borðinu?“

Foreldrar þurfa mögulega að taka sér tak og neita barninu glaðlega um hressingu eftir matinn og ef það er gert af ákveðni 3-4 kvöld í röð mun barnið samþykkja regluna – sér í lagi ef foreldrar hafa almennt staðið við orð sín og ekki sýnt ítrekaða undanlátssemi á öðrum sviðum.

Ef barnið er með í ráðum í matarstússinu öllu, mun áhugi á máltíðinni snaraukast. Gerð matseðils fyrir vikuna er bráðskemmtilegt fjölskylduverkefni þar sem börnin koma með sínar tillögur.

Þátttaka barna í undirbúningi og frágangi máltíðar hefur jákvæð áhrif á matarmenninguna. Þau geta fljótt byrjað að skera grænmeti með matnum, leggja á borð eða raða ögn í uppþvottavélina. Ef þau vinna þessi verk með foreldri, skapast líka frábær samskiptatími og samvera.

Magga Pála.

 

The post Uppeldisráð Möggu Pálu appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652