Bíó Paradís sýnir á sunnudagskvöldið Hið helga fell eftir Alejandro Jodorowsky. Sýningin er hluti Svartra sunnudaga, og er jafnframt styrktarsýning fyrir nýjustu mynd hins 95 ára gamla Jodorowsky, Endless Poetry.
Inga Kristján Sigurmarsson mætti kalla einn helsta aðdáanda Jodorowskys hér á landi, en hann skrifaði Bachelor ritgerð sína einmitt um þetta stórvirki leikstjórans, Hið helga fell. Hann segist ekki geta hugsað sér að missa af sýningunni jafnvel þó hann hafi oft séð myndina áður, enda verði myndin sýnd í bestu mögulegu mynd- og hljóðgæðum fyrir þessa sjónrænu veislu Jodorowskys. „Myndin segir sögu með myndum frekar en orðum, hún er hrein skynjun. Þó myndin virðist súrrealísk er táknfræðin í myndinni úthugsuð. Jodorowsky er ekki að leita eftir vitrænni túlkun áhorfandans heldur einbeitir hann sér frekar að því að ná fram skynhrifum í gegnum dulvitundina.“ Sýningin sé því mögnuð upplifun fyrir alla kvikmyndaunnendur.
The Holy Mountain verður sýnd Bíó Paradís sunnudagskvöldið 10. janúar, klukkan 20:00.
The post Samtal við undirmeðvitundina í Bíó Paradís appeared first on Fréttatíminn.