Ólíkt flestum Íslandsvinum hefur @vematsu aldrei komið til Íslands. Vematsu er frá Osaka í Japan og hefur unnið sér til frægðar á Twitter. Fyrir rúmum þremur árum fór hann að birtast í fréttaveitunni hjá Íslendingum. Valtýr Örn Kjartansson, nemandi við Menntaskólann í Reykjavík, var fyrsti Íslendingurinn sem Vematsu fylgdi á Twitter. „Ég var ekki virkur á Twitter en ég man eftir að hafa skoðað síðuna hans. Út frá því fór hann að fylgja öðru fólki á vinalistanum mínum. Hann reynir sitt besta til að skrifa íslensku sem er mjög fyndið. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en seinna að ég hefði verið fyrsti Íslendingurinn sem hann fylgdi og þykir mér það mikill heiður.“
Fréttir bárust að allir þeir sem fylgdu honum á Twitter fengju til baka mynd af sér í formi „Vemanon“ karakters eftir Vematsu sjálfan. Í dag er Vematsu búinn að teikna yfir 700 Íslendinga. Menntskælingurinn Sara Þöll Finnbogadóttir, besta vinkona Vematsu á Íslandi, segir hann feimin og mikil leynd bak við hann. „Við erum í góðum samskiptum, ég veit hvað hann heitir og fæst við en hann vill ekki gefa það upp opinberlega. Hann er feiminn og vill ekki sýna á sér andlitið en Kalli, vinur okkar, fór og heimsótti hann í sumar. Í byrjun seinasta árs sendi hann til okkar bunka af myndum eftir sig svolítið eins og fótbolta- eða Pokémon kort. Það vildu allir fá eintak. Við vorum nokkur sem sendum til hans afmælisgjöf í febrúar og hann var himinlifandi. Eftir það hefur hann sent til okkar kortin sín sem við seljum á 89 krónur stykkið. Við erum búin að safna 20.000 krónum á tveimur árum sem nemur 225 seldum kortum. Reglulega gefur hann út nýjar kortaseríur en sú síðasta var í þrívíddarteiknuð. Margir eru farnir að safna Vematsu kortum. Í jólakortinu, sem hann sendi okkur núna, segist hann vilja koma til Íslands og við vonumst til að hann komi á þessu ári.“

Karl Ólafur Hallbjörnsson blaðamaður er eini Íslendingurinn sem hefur hitt Vematsu í persónu. „Það var langþráður draumur að ferðast til Japan og ég ákvað í heimsreisu minni að heimsæka þennan hulduvin minn eða vinkonu. Lengi vel vissi ég ekki kyn Vematsu. Hann samþykkti að hitta mig og var spenntur fyrir því. Hann kom mér að óvörum með grímu og hárkollu til að stríða mér sem allra mest. Svo kom á daginn að hann er giftur karlmaður og kynnti mig fyrir eiginkonu sinni og nánasta vinahópi. Þeim þótti mjög gaman að mér, ljóshærðum, bláeygðum og hávöxnum frá Íslandi. Í dag get ég stoltur kallað hann einn af mínum betri vinum. Frábær maður, gestristinn, hreinskilinn og skemmtilegur.“

The post Dularfulli Íslandsvinurinn Vematsu appeared first on Fréttatíminn.