Margir hafa beðið spenntir eftir nýjustu kvikmynd Quentins Tarantino, The Hateful Eight. Myndin verður frumsýnd í dag, föstudag, en viðmælendur Fréttatímans sem mættu á forsýningar milli jóla og nýárs eru sammála um að hér sé um að ræða enn eina snilldina úr smiðju leikstjórans.
„Ég er búinn að sjá myndina tvisvar og hún var betri í annað sinn. Þessi mynd er dásamleg og Tarantino eins og við þekkjum hann best. Hún er hæg og löng en leikur sér skemmtilega með uppbyggingu, karakterarnir eru stórkostlegir, samtölin algjör snilld, húmorinn dökkur og leikararnir frábærir. Þetta er hugsanlega grimmasta myndin hans sem er athyglisvert í ljósi þess að myndin gerist öll í einum kofa.“
Tómas Valgeirsson, stofnandi og umsjónarmaður Bíóvefsins.
„Myndin er frekar löng en hún verður aldrei langdregin því hún er svo rosalega vel leikin. Svo er gaman að fylgjast með búningunum sem eru mjög áberandi og skemmtilegir. Ég var eiginlega hrifnust af karakterunum og búningunum.“
Álfhildur Ösp Reynisdóttir, nemi í lífeindafræði í HÍ, sem mætti á forsýningu myndarinnar og fékk fyrstu verðlaun fyrir flottasta búninginn.
„Frábær ádeila á samskipti kynja og kynþátta í Bandaríkjunum í dag, a la Reservoir Dogs.“
Guðbrandur Loki Rúnarsson kvikmyndafíkill.
„Það er svo margt gott við þessa mynd. Hún kom ekkert sérstaklega á óvart en það sem aðgreinir hana frá öðrum Tarantino myndum er þessi leikhúsuppbygging. Hún er eins og virkilega þétt leikhúsupplifun, en samt er hún engan veginn hefðbundin og alls ekki fyrir viðkvæma. Tónlistin er líka alveg geggjuð.“
Jóhann LePlat Ágústsson, sér um Facebook-hópinn Kvikmyndaáhugamenn.
„Hún er mjög skemmtileg. Svolítið lengi af stað en eftir á sá ég hvað það er mikilvægt fyrir þróun karakteranna. Hún hélt athygli allan tímann þó svo að sagan gerist öll inni í sama húsinu.“
Marín Levý Árnadóttir, nemi og kvikmyndaáhugakona.
„Hún er truflandi góð og situr lengi í manni. Ég sá hana fyrir áramót og er enn að melta hana. Nýtingin á sviðsmyndinni er svakalega góð en næstum allar tökur fara fram í einu herbergi á meðan aðrar Tarantino myndir fara út um allt. Tarantino fléttar oftast saman mörgum sögum en í þessari mynd er ein mjög djúp saga. Þessi er með hans bestu myndum, það er á hreinu.“
Sigga Clausen, gagnrýnir á Bíóvefnum.
The post Hvernig var Tarantino? appeared first on Fréttatíminn.