Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Snjór er peningar

$
0
0

„Ég var tvítugur þegar ég flutti í bæinn og hef verið að vinna við að moka snjó síðan,“ segir Ragnar Einarsson snjómokstursmaður sem Fréttatíminn rakst á í vikunni.

„Svo ólst ég upp austur á Héraði þar sem var alltaf mikill snjór, svo ég er nú ansi vanur snjó. Ég hef verið að vinna við vélar frá því ég var lítill peyi. Fyrst var það traktorinn í sveitinni og svo komu stærri vélar. Þegar ég flutti í bæinn fór ég að vinna hjá Vélamiðstöð Kópavogs en í dag er ég á mínu eigin tæki og vinn hjá sjálfum mér.“
„Snjórinn er fínn svona fyrstu þrjá dagana sem hann fellur, þá er gaman að ryðja en svo verður þetta jafn leiðinlegt og önnur vinna. Mér líður samt alltaf vel þegar hann byrjar að falla því hann er atvinnuskapandi. Snjór er ekkert nema peningar. Ég er lítið fyrir að labba í honum og ekkert fyrir að vera á skíðum.“
„Það er eitt sem getur verið erfitt við þetta starf en það er stressið í umferðinni. Sumt fólk verður pirrað eftir tvær sekúndur ef það lendir aftan við vélina, svo byrjar það að flauta eftir fimm sekúndur og byrjar svo að naga stýrið og eftir tíu sekúndur er það komið út úr bílnum, helst með felgulykil. Þetta er ótrúlegt. Fólk verður að sýna smá þolinmæði og átta sig á því að snjómoksturinn er nauðsynlegur fyrir öryggið í borginni, hann er ekki til að fólk komist hraðar yfir.“

Í þann mund sem við ætluðum að kveðja Ragnar kom hann auga á fullorðinn mann á næsta horni sem mundaði rösklega skófluna á snjóskaflana. Ragnar var ekki lengi að hoppa upp í vélina sína og moka innkeyrsluna fyrir hæstánægðan manninn sem heitir Árni Ferdinandsson og hefur búið í Sundunum í tugi ára.

 

Snjómokstur í Reykjavík

„Þetta er besta afmælisgjöf sem ég hefði getað fengið,“ sagði Árni skælbrosandi en hann fagnaði einmtt níræðisafmæli þennan sama dag.

Snjómokstur í Reykjavík Snjómokstur í Reykjavík

 

 

The post Snjór er peningar appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652