Í hópnum Krakka Gaman eru átta krakkar á aldrinum 9-16 ára sem síðastliðið ár hafa gert sjö grínþætti og birt á Youtube. Gerð myndbandanna kemur þannig til að krakkarnir í hópnum eru börn vinafólks sem oft kemur saman og heldur matarboð. Í löngum boðum, þar sem spjallað er fram eftir kvöldi, tóku krakkarnir til þess ráðs að búa til þætti til að stytta sér stundir.
Krakkagaman-hópurinn kemur nú alltaf saman þegar slík matarboð eru haldin. Krakkarnir byrja á að koma með hugmyndir að atriðum og skrifa handrit. Svo eru þau tekin upp og allir skiptast á að leika og hjálpast að með upptöku hljóðs.
Eggert Geir kýs heldur að vera fyrir aftan myndavélina og sér um myndatöku, klippingu og eftirvinnslu. Eggert hefur haft áhuga á framleiðslu kvikmynda í fjögur ár og pabbi hans sýndi honum klippiforrit í tölvunni. Síðan hefur hann safnað sér fyrir kvikmyndavél, hljóðnemum og öðru til að framleiða Krakka Gaman og annað efni.
Svo virðist vera að hópurinn sé farinn að vekja athygli fyrir þættina og er framtíð hans björt.
Margrét Vilhelmína er eina stúlkan í hópnum, eins og er, og segir að ókunnugir krakkar hafi stundum komið að máli við sig vegna þáttanna. „Það hafa einhverjir krakkar sagt við mig: „Hey, ert þú ekki stelpan í Krakkagamni?“ Það eru ekki endilega krakkar sem ég þekki, bara krakkar í sundi og svoleiðis.“
Hópurinn er rétt að byrja og langar að gefa út DVD-disk þegar hann er komin með 10 þætti og hefja svo framleiðslu á annari seríu.
Þættirnir eru nú sjö talsins, en Krakka Gaman 8 er væntanlegt á Youtube.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
mynd/af YouTube
The post Krakka Gaman – gera grínþætti í matarboðum appeared first on Fréttatíminn.