Gísli Gíslason, lögfræðingur og rafbílainnflytjandi, er staddur í lyftunni hans Spessa ljósmyndara í gömlu Kassagerðinni á Laugarnesi. Á ferðalaginu upp fjórar hæðir hússins segir Gísli frá sínum 100 kílómetra hæðum og gjaldþrota lægðum í lífinu.

„Ef ég á að vera hreinskilinn, þá var tíminn sem mér leið hvað verst í lífinu þegar ég var útskurðaður gjaldþrota árið 2002. Það voru áætlaðir háir skattar á mig sem mér tókst ekki að leiðrétta fyrr en seinna. Það var erfitt á meðan á því stóð en eftir á að hyggja lærði ég mikið af því og þetta var alls ekki svo slæmt, enda fékk ég búið mitt fljótlega aftur,“ segir Gísli og lýsir í kjölfarið sínum hæstu hæðum. „Ég er búinn að vera með sömu konunni í 35 ár og við eigum saman fimm börn, það er minn stöðugi hápunktur. Annað sem stendur upp úr er þegar ég fékk miða út í geiminn frá Richard Branson. Ég er númer 258 í röðinni að fara upp í geim með Virgin Galactic. Ég vonast til þess að komast að seinnipartinn á næsta ári. Við ferðumst 100 kílómetra á 70 sekúndum upp í þyngdarleysi og fáum að sjá jörðina að ofan. Það verður bókstaflega minn hápunktur.“
The post Frá gjaldþroti til tunglsins appeared first on Fréttatíminn.