Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hvað er eftir í karlaheimum?

$
0
0

24665 Gasgrill

Útigrillið

Leið karlsins inn í eldamennskuna. Nógu mikil græja svo það sé karlmannlegt að stjórna henni. Eitthvað annað en þeytari.

Bílskúrinn

Hið nýja húsbóndaherbergi. Geymsla fyrir verkfæri og alls konar karladót.

Manchester United v Swansea City - Premier League

Enski boltinn

Trúarbrögð og tindátaleikur, ígildi ættar og uppruna og afmörkuð friðhelg stund utan áhrifasvæðis kvenna.

24665 - menn að drekka bjór

Bjór

Eins og kampavín er drykkur brúðhjóna er bjór drykkur karlfélaga. Félagshæfni karla er mæld eftir því hversu eftirsóknarvert er að drekka með þeim bjór.

Mótorhjól

Útigrill sem hægt er að setjast upp á og keyra á burt úr bakgarðinum og upp í Hvalfjörð.

24665 - The-Revenant-Movie-2016-DiCaprio

Kafbátamyndir

Það er næstum öruggt að þar er engin kona, ekki einu sinni í aukahlutverki. Kafbátamyndir þurfa ekki að gerast um borð í kafbáti. The Revenant gerist í óbyggðum Ameríku og The Big Short í bakherbergjum Wall Street en í hvorugri myndinni spila konur nokkra rullu.

24665 - hakkabuff

Hakkabuff og plokkfiskur

Einkennismatur karllægra veitingahúsa. Maturinn hennar mömmu sem karlarnir fá ekki lengur heima hjá sér.

Jólaskraut

Karlar elska allt sem hægt er að keppa í. Yfirgengilegar jólaskreytingar breyta væminni samkennd aðventunnar í hörku samkeppni.

Star Trek

Drengir eru hinir upprunalegu nördar. Félagsleg bæklun hrekur þá inn í draumaheima þar sem allir eru nördar.

9446 Kristján Hjálmarsson 3

Veiðimennska og skytterí

Veiðikofinn er karlaklósett, vettvangur kynhreinna tengsla.

Kannabis

Konur reykja líka gras en það er fátíðara að þær sannfærist um að helsta mein heimsins sé að of fáir reyki kannabis.

24665 - Stridsarin_1938til1945

Stríðsárin

Bækur og heimildarmyndir um stríðsárin eru hátt í helmingur af öllum bókum og heimildarmyndum um sagnfræðileg efni. Ástæðan er ekki áhugi kvenna. Karlar gerðu Stríðsárin á Íslandi 1938 til 1945 að metsölubók fyrir síðustu jól.

Vantrú

Það er svipað hlutfall kvenna og karla sem trúa ekki á Guð en þegar konur trúa ekki þá trúa karlar alls ekki.

Bílar án notagildis

Sportbílar sem eru smíðaðir til að keyra hraðar en leyfilegt er og skutbílar sem eru með burðargetu sem aldrei er notuð.

Súrsaður og kæstur matur

Ef það þarf að taka á honum stóra sínum til að kyngja þá er það karlamatur. Líka drykkir sem rífa illa í.

Rakarastofa

Kynjaskipt hársnyrting.

24665 - sixpensari

Sixpensari

Eina fatið sem konur hafa ekki sannað að fer þeim í raun mun betur en körlum.

Stefán Máni

Það eru nánast einvörðungu karlar sem fá bækur Stefáns Mána að láni á Borgarbókasafninu.
Stefán MániRithöfundur

Ertu karl?

Ef þrjú atriði á þessum opnum freista þín ertu líklega karl, sama af hvaða kyni þú ert.

Ef sex atriði heilla þig ertu karla karl, karl sem funkerar betur í samfélagi karla en í blönduðum hópi.

Ef níu atriði eða fleiri eiga við þig ertu alvarlega kynheft(ur). Þú leitar í einsleita karlahópa og hræðist konur.

The post Hvað er eftir í karlaheimum? appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652