Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Á blöðruskjóta til fjalla

$
0
0
Fáir tengja hjólaæðið sem gengið hefur yfir landið síðustu misserin sérstaklega við vetrarsport. Það þýðir hinsvegar ekki að það sé ekki svo. Nagladekk fyrir reiðhjól hafa þekkst í langan tíma og á þeim má þeysa um skafna hjólastíga allan veturinn. Annað hefur hingað til verið upp á teningnum með fjallahjólreiðar. Eins og nærri má geta sökkva mjó hjóladekk djúpt snjóinn og því verður fjallatúrinn oftar en ekki í styttri kantinum sé ekki harðfenni. Það var í það minnsta þangað til blöðruskjótinn, eða fatbike hjólið, kom til sögunnar sem er reiðhjól með einstaklega breiðum dekkjum.
Þau hafa reyndar verið til í heimi sérvitringa í nokkurn tíma en síðustu tvö árin hefur orðið sprenging í notkun þeirra feitu enda allir helstu hjólaframleiðendurnir byrjaðir að framleiða slíka gripi. Nú er líka svo komið að í lok janúar á að halda fyrsta árlega heimsmeistaramótið í fatbikehjólreiðum í Colorado í henni Ameríku. Að sjálfsögðu munum við Íslendingar eiga okkar fulltrúa þar því Bergur Benediktsson, einn af fjórmenningunum á bak við Lauf forks, koltrefjagafflana tæknilegu, ætlar að halda uppi heiðri okkar Frónbúa þar ytra.
Bergur segist nota blöðrusjótann bæði til innanbæjarsnatts og fjallahjólreiða enda fer gripurinn jafn léttilega upp og niður tröppur innanbæjar sem upp og niður brekkur og kletta úti í náttúrunni. Ekki skemmir svo fyrir þegar Laufgaffallinn fyrir fatbike er kominn að framan enda lang vinsælasta varan hjá þeim, enn sem komið er.
Blöðruskjótinn er því sannkallaður jeppi hjólasportsins. Svínvirkar meira að segja að hleypa vel úr dekkjunum og fljóta á snjónum líkt og jeppakarlarnir hafa gert í áratugi.
Sunnan heiða er einfalt að leita að brekkum á Hengils- og Bláfjallasvæðinu eða í Skálafell, nú eða bara þar sem er smá snjór, hvar hægt er að planta sér á blöðruskjótann og þeysa um frjáls eins og fuglinn.
Bergur Benediktsson Fjallahjól snjór Vetrasport Fat bike
Bergur Benediktsson notar fatbike bæði til innanbæjarsnatt og fjallahjólreiða.
Bergur Benediktsson Fjallahjól snjór Vetrasport Fat bike
Bergur Benediktsson Fjallahjól snjór Vetrasport Fat bike Bergur Benediktsson Fjallahjól snjór Vetrasport Fat bike Bergur Benediktsson Fjallahjól snjór Vetrasport Fat bike Bergur Benediktsson Fjallahjól snjór Vetrasport Fat bike Bergur Benediktsson Fjallahjól snjór Vetrasport Fat bike Bergur Benediktsson Fjallahjól snjór Vetrasport Fat bike
Ljósmyndir/Hari

The post Á blöðruskjóta til fjalla appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652