Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Perlurnar sem Óskarinn hundsaði

$
0
0

Óskarsnefndin virðist ekki hrifin af myndum sem innihalda samkynhneigð eða aðra kynþætti en hvíta. 

Enn og aftur er Óskarinn gagnrýndur fyrir lítt fjölbreytilegt val í tilnefningum. Enginn svartur leikari eða leikstjóri er tilnefndur til verðlaunanna. Nú hafa leikstjórinn Spike Lee og leikkonan Jada Pinkett Smith bæði tilkynnt að þau hyggist sniðganga hátíðina vegna þessa. Hér eru myndir sem fengið hafa viðurkenningar og frábæra gagnrýni á árinu en Óskarinn hundsaði.

Beasts of No Nation
Idris Elba var tilnefndur til Golden Globe-verðlauna, BAFTA-verðlauna og Screen Actors’ Guild verðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni, sem fjallar um barnastríðsmenn í ónefndu landi. Því má velta fyrir sér hvort húðlitur Elba hafi eitthvað með lítinn áhuga Óskarsnefndarinnar að gera.

Carol
Mörgum kom á óvart að þessi magnaða ástarsaga milli tveggja kvenna hafi ekki verið tilnefnd sem besta mynd ársins. Hefði hún verið það ef Carol væri Carl?

Creed
Michael B. Jordan hefur fengið jafn góða dóma fyrir leik sinn í myndinni og fyrri mynd hans, Fantastic Four, fékk slæma dóma. Myndin er eins konar óður til Rocky myndanna og var eina tilnefningin sem hún fékk einmitt fyrir besta leikara í aukahlutverki, sjálfan Rocky Balboa.

Straight Outta Compton
Nú er kannski orðið ljóst að Óskarsnefndin málar ekki með öllum litunum. Myndin fékk eina handahófskennda tilnefningu í flokkinum Besta handrit. Leikur í myndinni þykir þó hafa átt tilnefningu skilið og þykir myndin ein sú besta sem út kom á árinu.

Concussion
Mynd um lækni sem uppgötvar hvernig fótbolti, sem spilaður er í Bandaríkjunum, skaðar höfðu leikmanna hans ætti að vera einmitt eitthvað fyrir Óskarsnefndina. Myndin er í senn dramatísk, sannsöguleg og rímar við mál sem eru í deiglunni núna, en þó fékk hún enga náð fyrir dómnefnd Óskarsins.

Tangerine
Það bjóst ef til vill enginn við að svo ódýr mynd í framleiðslu myndi ná athygli Óskarsnefndarinnar, en það hefði verið stórt stökk fram á við að tilnefna frábæran leik transkonunnar Mya Taylor til verðlaunanna.

The post Perlurnar sem Óskarinn hundsaði appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652