Tískuviku karla í París lýkur í dag. Sem endranær hefur vikan verið veisla fyrir líkama og sál þeirra sem fengu að berja dýrðina augum. Við hin getum notið ljósmyndanna sem bera vitni um nýjustu strauma tískunnar. Það vakti sérstaka athygli hversu margir hönnuðir vottuðu fórnarlömbum hryðjuverkaárásanna í París samúð eða gagnrýndu árásirnar með hinum ýmsu leiðum í hönnun sinni. Þeirra á meðal voru Comme des Garcons, Walter Van Beirendonck og Luis Vuitton. Hér má sjá brot af dýrðinni.







The post Tískuvikan í París appeared first on Fréttatíminn.